Handbolti

Þrír sigrar og eitt tap hjá Ís­lendinga­liðunum í Þýska­landi í kvöld

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Arnar Freyr skoraði eitt mark í góðum sigri Melsungen í kvöld.
Arnar Freyr skoraði eitt mark í góðum sigri Melsungen í kvöld. EPA-EFE/LUKAS BARTH-TUTTAS

Fjögur Íslendingalið voru í eldlínunni í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Balingen-Weilstetten vann Coburg, 34-26. Melsungen vann Essen, 35-28, Bergischer vann Minden 36-29 en Stuttgart tapaði á heimavelli gegn Ludwigshafen, 26-29.

Melsungen, lið Guðmunds Guðmundssonar, vann sjö marka útisigur á Essen í kvöld. Línuamðurinn Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt mark í liði Melsungen.

Oddur Gretarsson skoraði tvö mörk í sex marka sigri Balingen-Weilstetten á Coburg, lokatölur 34-26. Arnór Þór Gunnarsson skoraði tvö mörk í sjö marka sigri Bergischer á Minden á útivelli. Lokatölur 36-29 Bergischer í vil.

Þá tapaði Stuttgart á heimavelli gegn Ludwigshafen, lokatölur 29-26 gestunum í vil. Viggó Kristjánsson skoraði þrjú mörk í liði Stuttgart en Elvar Ásgeirsson komst ekki á blað.

Bergischer er í 6. sæti deildarinnar, Melsungen er í 10. sæti, Stuttgart í 12. sæti og Balingen-Weilstetten í 15. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×