Þeirra á meðal voru þrjú skólasystkini Freyju úr sjúkraliðanámi, sem sjálf búa ekki í bænum.
„Við þekktum Freyju mjög vel og við vorum saman í skóla og þekktum hana persónulega og þess vegna erum við hér í dag,“ segir Steffen Petersen, vinur Freyju, í samtali við fréttastofu.
Margir þeirra sem tóku þátt þekktu ekki fjölskylduna en vildu engu að síður sýna samhug. Ein þeirra var Mia Sørensen. „Við komum frá smábæ hér rétt hjá Malling. Ég kem frá bænum Odder. Vinir mínir búa hér, við komum til að tendra ljós og votta henni virðingu okkar,“ segir Mia. Sumir létu ekki nægja að kvekja kerti eða leggja blóm heldur skildu einnig eftir skriflega kveðju.
„Kæra Freyja. Ég þekkti þig ekki… Bara örlög þín og það snertir mig djúpt. Megi ljós þitt ávalt skína. Megi stjarna þín ávalt skína niður til barnanna þinna, ástvina þinna og þinna kærustu. Innilegustu og hlýjustu straumar til ykkar allra,“ segir í einni kveðjunni.

Fjöldi fólks vottað virðingu sína
Þeir sem Freyju þekktu bera henni afar vel söguna. „Hún var stórfín og bar mikla umhyggju fyrir öðrum og tók sér tíma til að hlusta á aðra. Hún var mjög góð,“ segir Simon Kjeldgaard, annar fyrrverandi skólabróðir Freyju.
Bæði ungir sem aldnir lögðu leið sína í garðinn. Feðginin Kasper og Johanne þekktu Freyju í gegnum son hennar. „Ég kom því að ég hef verið með syni hennar í bekk,“ segir Johanne, sem var í núllta bekk, sem er fyrsti bekkur grunnskóla í Danmörku, með syni Freyju. „Já, krakkarnir voru saman í skóla þannig við þekktum þa vel,“ segir Kasper. Meðal þeirra sem skildu eftir blóm og kveðju voru bekkjarsystkini barna Freyju.

Mikill sorgaratburður fyrir lítinn bæ
Engann hafði órað fyrir því að svo skelfilegur atburður myndi eiga sér stað í þessum litla bæ.
„Nei, maður vill ekki trúa því versta upp á fólk. Við skiljum þetta ekki,“ segir Mette Moosdorf, sem einnig var með Freyju í námi líkt og Steffen og Simon.
Mia tekur í sama streng. „Þetta er mikill sorgaratburður í svona litlum bæ þar sem þar sem flestir þekkja hvern annan,“ segir Mia.

„Maður hefði aldrei búist við þessu yfir höfuð. Hvað þá að þetta kæmi fyrir svona ljúfa og góða konu. Freyja hafði einstaka lífsgleði, var ótrúlega ljúf og var alltaf til í að hjálpa öðum ef hún gat. Það gerir hún alltaf fyrir alla sem hún þekkti. Eða gerði, réttara sagt,“ segir Steffen.