Allar plastflöskur Coca-Cola á Íslandi úr endurunnu plasti á fyrsta ársfjórðungi Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 7. desember 2020 12:51 Áður er fyrsti ársfjórðungur 2021 er úti verða allar plastflöskur sem Coca-Cola á Ísland framleiðir verða úr endurunnu plasti. Forstjórinn segir hátt endurvinnsluhlutfall vera lykilatriði. Vísir/Getty/aðsend Frá og með fyrsta ársfjórðungi 2021 verða allar plastflöskur, sem Coca-Cola á Íslandi framleiðir, úr 100% endurunnu plasti en við breytinguna mun notkun á nýju plasti á Íslandi minnka um 530 tonn. Forstjórinn segir fátt fara meira í taugarnar á honum en að sjá drykkjarumbúðir sem hann framleiðir úti á götu eða í fjörunni.
Coca-Cola, PepsiCo og Nestlé hafa verið ásökuð um að hafa náð litlum sem engum árangri í að draga úr plastnotkun og sögð vera þau þrjú fyrirtæki sem valda mestri plastmengun í heiminum þriðja árið í röð. Þetta kemur fram á The Guardian í dag en samtökin „Break free from Plastic“ hafa nú greint frá niðurstöðum árlegrar úttektar á plastmengun. Breytingin á við um öll vörumerki sem fyrirtækið framleiðir á Íslandi en það er einn stærsti matvælaframleiðandi landsins. Einar Snorri Magnússon, forstjóri Coca-Cola á Íslandi, var spurður hvað notkun á nýju plasti muni dragast mikið saman hér á landi við breytinguna. „Hún minnkar talsvert mikið. Hún mun minnka um 530 tonn á ári, sem er talsvert. Þetta eru rúmlega 20 milljón flöskur sem við framleiðum á hverju ári og það munar um minna.“ Þróunin yfir í endurunnið plast er hluti af sjálfbærnistefnu CCEP og The Coca-Cola Company í Vestur-Evrópu, sem er undir yfirskriftinni „Áfram veginn“ (e. This is Forward) þar sem fyrirtækin heita því að tryggja að a.m.k. 50% af plastflöskunum verði úr endurunnu plasti. Fyrirtækin hafa nú sett sér nýtt markmið en í því felst að engar plastflöskur verði framleiddar úr nýju plasti innan áratugs. Ísland verður ásamt Noregi, Svíþjóð og Hollandi fyrst fyrirtækjanna til að ná markmiðinu. Einar segir að lykilatriði í hringrásarhagkerfinu sé að endurvinnsluhlutfallið sé hátt. „Það sem skiptir öllu máli fyrir okkur er að fólk sé duglegt að skila plastflöskunum sem það notar og það er í raun og veru það sem gerir okkur kleift að fara í þessa breytingu. Íslendingar hafa verið mjög duglegir við að skila drykkjarumbúðum til endurvinnslunnar og endurvinnslan selur þessar drykkjarumbúðir til endurvinnslufyrirtækja sem gerir þeim kleift að endurnýta þær.“ Einar segir að neytendur krefjist í auknum mæli grænna og sjálfbærra lausna. Fyrirtæki á tímum sem þessum verði að koma til móts við þá. „Það fer fátt meira í taugarnar á manni heldur en að sjá drykkjarumbúðir sem maður framleiðir einhvers staðar úti á götu eða úti í fjöru. Sem betur fer er það þannig að við sjáum ekki mikið af því, því Íslendingar eru mjög duglegir að skila þessu í endurvinnsluna, það er um og yfir 90% af drykkjarumbúðum sem kemur til baka í gegnum skilagjaldskerfið okkar, þetta skiptir okkur og viðskiptavini okkar gríðarlega miklu máli – að við séum að huga vel að þessum málum,“ sagði Einar Snorri.
Umhverfismál Tengdar fréttir Plastmengun vaxandi vandamál á norðurslóðum Plastagnir finnast nú nær alls staðar í hafinu á norðurslóðum en frekari rannsóknir skortir til að rekja uppruna þeirra. Framleiðsla á plasti hefur aukist gífurlega á síðustu áratugum og útlit er fyrir að hún margfaldist fyrir miðja þessa öld. 8. maí 2020 09:00 Herferðir gegn plastmengun í september Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna fyrir Vestur-Evrópu (UNRIC) tekur ásamt Evrópusambandinu og fleirum, þátt í strandhreinsunarátakinu #EUBeachCleanUp. 3. september 2019 16:15 Mest lesið Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Fleiri fréttir Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Sjá meira
Plastmengun vaxandi vandamál á norðurslóðum Plastagnir finnast nú nær alls staðar í hafinu á norðurslóðum en frekari rannsóknir skortir til að rekja uppruna þeirra. Framleiðsla á plasti hefur aukist gífurlega á síðustu áratugum og útlit er fyrir að hún margfaldist fyrir miðja þessa öld. 8. maí 2020 09:00
Herferðir gegn plastmengun í september Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna fyrir Vestur-Evrópu (UNRIC) tekur ásamt Evrópusambandinu og fleirum, þátt í strandhreinsunarátakinu #EUBeachCleanUp. 3. september 2019 16:15