Þórálfur er fjórtánda jólavættin í borginni Atli Ísleifsson skrifar 4. desember 2020 11:46 Þórálfur þykir reglusamur og ákveðinn, enda sér hann um allar sóttvarnir í helli jólasveinanna. Gunnar Karlsson teiknaði Þórálf líkt og hinar jólavættirnar. Reykjavíkurborg Ný jólavætt hefur bæst í hópinn hjá Reykjavíkurborg. Er um að ræða jólavættina Þórálf sem þykir reglusamur og ákveðinn, enda sér hann um allar sóttvarnir í helli jólasveinanna.
Ný jólavætt hefur bæst í hópinn hjá Reykjavíkurborg. Er um að ræða jólavættina Þórálf sem þykir reglusamur og ákveðinn, enda sér hann um allar sóttvarnir í helli jólasveinanna. Frá þessu segir á vef Reykjavíkurborgar en síðustu ár hafa margir tekið þátt í jólavættaleik borgarinnar og reynt að hafa uppi á jólavættunum í miðborginni. Er ætlað að hvetja borgarbúa og aðra gesti til að njóta miðborgarinnar á aðventunni. Reykjavíkurborg Það er Gunnar Karlsson myndlistarmaður sem teiknaði vættirnar en leikurinn hefur lífgað upp á miðborgina í jólatíð allt frá 2011. Um Þórálf segir að hann eigi það til að skella sér óvænt til byggða á aðventunni til að næla sér í nauðsynjar og þá sé eins gott að passa vel upp á sprittbrúsana sína og grímurnar. Alls má nú finna fjórtán jólavættir víðs vegar um borgina, en nálgast má upplýsingar um leikinn hér. Þannig eru Leppalúði, Leiðindaskjóða, Stekkjastaur, Jólakötturinn og fleiri furðuverur búnar að koma sér fyrir á húsveggjum víða í miðbænum og getabörn jafnt sem fullorðnir reynt að leita uppi vættirnar.
Reykjavík Jól Krakkar Mest lesið Jólamolar: Stjórnlaus þegar kemur að möndlugrautnum Jól Einfalt föndur: Skemmtilegt jóladagatal Jól Jóladagatal - 11. desember - Hjartapokar Jól „Jólin hafa ekki alltaf verið auðveld“ Jól Glæsilegir smáréttir Guðrúnar Jól Lætur sig dreyma um nýja PlayStation þar sem bíllinn situr pikkfastur í snjóskafli Jól Ódýrt og einfalt jólaföndur sem allir geta gert Jól Jólamolar: Setur leðurhanska á óskalistann á hverju ári Jól Betri en hefðbundnar sörur Jól Jólalag dagsins: Geir Ólafsson flytur Santa Claus Is Coming To Town Jól