Skoðun

(fag)Mennskan

Einar Hermannsson skrifar

Allt frá því að hópur frumkvöðla stofnaði SÁÁ hefur verið haft að leiðarljósi að veita þeim stuðnig sem orðið hafa fíkn að bráð. Segja má að stofnun SÁÁ hafi verið kraftaverk enda ekki nokkur maður sem í upphafi leiddi hugann að rekstrahagnaði eða eygðu von um að selja sinn hlut í samtökunum. Mennskan réð för og frumkvöðlarnir geta í dag litið aftur og verið með réttu mjög stoltir yfir sínum verkum.

Í dag er SÁÁ mikilvæg stoð í heilbrigðiskerfinu. Árlega hafa innlagnir á Vog verið um 2.200, heimsóknir á göngudeild okkar í Efstaleiti og á Akureyri 25.000 og 600 innlagnir á Vík eftirmeðferðarstöð okkar á Kjalarnesi. Síðast en ekki síst er í boði búsetuúræðið Vin sem rúmar 20 karlmenn og vantar sárlega samskonar úrræði fyrir konur. Afar mikilvægt er að geta boðið langtíma búsetuúrræði með slíku sniði þar sem menntaður heilbrigðisstarfsmaður og starfsmenn göngudeildar koma sameiginlega að bataferlinu og virkja einstaklinginn á ný.

Með tímanum hafa kröfur samfélagsins til heilbrigðiskerfsins breyst og gerðar eru auknar kröfur til þeirra sem vinna með sjúklingum. Við hjá SÁÁ höfum svo sannarlega staðið undir þeim kröfum en tæplega 90% starfsfólksins er með heilbrigðismenntun. Í okkar röðum er að finna lækna, hjúkrunarfræðinga, áfengis og vímuefnaráðgjafa, sálfræðinga, sjúkraliða og lýðheilsufræðinga.

Fagmennskan er ávallt í fyrirrúmi og stöðugt unnið að því að þróa og starfa samkvæmt nýjustu kröfum í fræðunum með mennskuna að leiðarljósi líkt og frumkvöðlarnir lögðu hornstein að.

Ríkið greiðir um 90 % af rekstri SÁÁ og það sem uppá vantar kemur af sjálfsaflafé sem fyrirtæki og einstaklingar hafa látið af hendi rakna svo starfsemi SÁÁ geti keyrt á fullu afli og þróað ný úrræði. Fyrir það erum við mjög þakklát. Þar sem við glímum við illvígan sjukdóm er félagslegi þátturinn mikilvægur, sumir þurfa meiri og lengri þjónustu til að ná bata og virkni, það þarf að hlúa betur að þeim hópi.

Þvi miður var álfasala ekki möguleg í ár í ljósi aðstæðna en þess í stað verðum við með söfnunarþátt á RÚV þann 4. desember. Við biðlum til þjóðarinnar að styðja við bakið á okkar sjúklingum og aðstendum þeirra á þessum skrýtnu og erfiðum tímum. Það er hægt að taka margt frá okkur, en mennskan er alltaf til staðar og það að rétta öðrum hjálparhönd.

Með fyrirfram þökkum og ósk um gleðileg jól

Höfundur er formaður SÁÁ.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×