Handbolti

Löwen enn á toppnum eftir stór­sigur | Viggó öflugur að venju

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Alexander Petersson skoraði eitt mark í kvöld en Rhein-Neckar Löwen trónir á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir.
Alexander Petersson skoraði eitt mark í kvöld en Rhein-Neckar Löwen trónir á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir. vísir/getty

Nokkrir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Var töluvert af íslenskum leikmönnum í eldlínunni.

Nokkrir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Var töluvert af íslenskum leikmönnum í eldlínunni. Topplið Rhein Neckar-Löwen vann 13 marka sigur á Wetzlar, 37-24. Gott gengi Stuttgart heldur áfram en liðið vann 12 marka sigur á Nordhorn-Lingen í kvöld.

Löwen átti ekki í neinum vandræðum með Wetzlar og vann í kvöld sinn áttunda sigur í aðeins níu leikjum. Eftir að vera sjö mörkum yfir í hálfleik, 18-11, þá vann Löwen á endanum þægilegan 13 marka sigur. Lokatölur 37-24 og Löwen trónir á toppi deildarinnar með 16 stig.

Hinn síungi Alexander Petersson skoraði eitt mark í liði Löwen í kvöld en Ýmir Örn Gíslason komst ekki á blað.

Viggó Kristjánsson skoraði fimm mörk í 12 marka sigri Stuttgart á Nordhorn-Lingen. Elvar Ásgeirsson komst hins vegar ekki á blað en leiknum lauk 36-24 Stuttgart í vil.

Stuttgart er í 3. sæti deildarinnar en liðið hefur leikið þremur leikjum meira en Flensburg sem situr í 4. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×