Talið að lög hafi verið brotin í flugmáli og bæjarstjórinn áhyggjufullur Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 12. nóvember 2020 19:01 Rebekka Hilmarsdóttir hefur kallað eftir upplýsingum um hvort þjónusta við Vestfirðinga verði skert. Þjónustan sé mikilvæg - óháð því hver veitir hana. Vísir/Egill
Kærunefnd útboðsmála telur að Vegagerðin hafi brotið gegn lögum um opinber innkaup með samningum sínum við Norlandair um flugleiðir til og frá Bíldudal. Bæjarstjóri Vesturbyggðar hefur áhyggjur af því að verið sé að skerða þjónustu á Vestfjörðum. Vegagerðin gekk frá samningum við Norlandair um áætlunarflug til Bíldudals og Gjögurs og við Flugfélagið Erni um flug milli Reykjavíkur og Hafnar í kjölfar útboðs um flugleiðirnar þrjár. Flugfélagið Ernir hafði þá kært ákvörðun um að taka tilboði Norlandair með vísan til þess að vélar þeirra uppfylli ekki þau skilyrði sem lögð hafi verið til grundvallar í útboðinu. Í ákvörðun kærunefndar útboðsmála segir að af gögnum málsins verði ráðið að Norlandair hafi ekki búið yfir vél sem hafi uppfyllt sett skilyrði. Eins og málið liggi fyrir sé útlit fyrir að brotið hafi verið gegn lögum um opinber innkaup. Samtök atvinnurekenda á sunnanverðum Vestfjörðum hafa mótmælt því að annað flugfélag en Ernir, sem hafi þjónað Vestfirðingum í 50 ár, taki við þessum flugleiðum og sent samgönguráðherra bréf þess efnis. „Það er annars vegar um að ræða litla sjö manna vél með jafnþrýstibúnaði og síðan er eldgömul vél sem er bara ótrúlegt að menn skuli bjóða upp á og það veldur okkur mikilli óánægju,“ segir Sigurður Viggósson, formaður Samtaka atvinnurekenda á sunnanverðum Vestfjörðum, sem telur að fraktflutningar komist í uppnám samhliða þessum breytingum. „Vélarnar rétt ná að hafa pláss fyrir farangur farþega en ekkert umfram það,“ segir hann. Allar kröfur standist Í yfirlýsingu sem Norlandair sendi fréttastofu er þessu alfarið hafnað - hafið sé yfir allan vafa að tækjabúnaður sé góður og standist allar kröfur, en yfirlýsinguna má sjá í heild neðst í þessari frétt. Vegagerðin hefur sömuleiðis sent frá sér tilkynningu þar sem segir að Norlandair hafi uppfyllt öll skilyrði. „Það er annars vegar um að ræða litla sjö manna vél með jafnþrýstibúnaði og síðan er eldgömul vél sem er bara ótrúlegt að menn skuli bjóða upp á," segir Sigurður Viggósson.Vísir/Egill Rebekka Hilmarsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, segist ekki hafa fengið að vita af þessum breytingum fyrr en nýlega. Hún hyggst kalla eftir upplýsingum um málið. „Þetta kom mjög snöggt upp. Við fengum lítið að heyra af þessu fyrr en bara fyrir örfáum dögum síðan,“ segir hún. „Þessi flugmál valda okkur töluverðum áhyggjum, sérstaklega ef rétt reynist að það sé verið að skerða þjónustu. Við höfum svo sem ekki fengið staðfest að svo sé en höfum átt í góðu samtali við Vegagerðina og umhverfis- og samgöngunefnd þingsins um þetta mál,“ segir Rebekka en málið var tekið fyrir á fundi samgöngunefndar Alþingis í morgun. Rebekka tekur fram að mikilvægast sé að Vestfirðingar fái þessa þjónustu – óháð því hvaðan hún kemur. Yfirlýsing Norlandair er eftirfarandi: Vegna yfirlýsingar Samtaka atvinnurekenda á sunnanverðum Vestfjörðum (SASV), sér Norlandair sig knúið til að leiðrétta rangfærslur sem þar birtast. Norlandair rekur 5 flugvélar og hefur sinnt áætlunarflugi fyrir Vegagerðina í 12 ár, auk leigu- og sjúkraflugs á N-Atlantshafinu. Félagið er skuldlaust og með milljarð í eigið fé. Rætur þess liggja í Flugfélagi Norðurlands sem rann saman við Flugfélag Íslands (nú Air Iceland Connect) árið 1997. Gott samstarf hefur verið milli Flugfélags Íslands / AIC frá þeim tíma sem Norlandair tók á sig mynd árið 2008. Félagið hefur ávallt verið rekið með hagnaði f og verið eitt af Framúrskarandi fyrirtækjum Creditinfo frá stofnun. Norlandair skrifaði nýlega undir samning við Vegagerðina að undangengu útboði sem opnað var 20. apríl s.l. Í útboðsskilmálum koma fram kvaðir um hæfi bjóðenda, þ.m.t. fjárhagsleg skilyrði sem eru ófrávíkjanleg, s.s. jákvætt eigið fé og geta til að inna samningskyldur af hendi, auk kvaða um gæði búnaðar sem nota skal við þjónustuna. Norlandair uppfyllir öll skilyrði mjög rúmlega. Rangfærslur SASV snúa að tækjabúnaði félagsins. Til stendur að nota nýlega 9 sæta Beechcraft B200 King Air, sem búin er jafnþrýstibúnaði. Jafnframt verður notast við Dash 8-200, sem er 37 sæta, þegar og ef þörf krefur. Að auki býr félagið yfir þremur Twin Otter flugvélum sem þykja einstaklega hentugar við erfiðustu skilyrði á norðurslóðum, en þær vélar notast félagið mest við á Grænlandi. Á vormánuðum var félagið komið langt með að tryggja sér Dash 8 flugvél, en þau áform frestuðust sökum COVID-19. Það er hafið yfir allan vafa að tækjabúnaður sem notast verður við er mjög góður og stenst allar kröfur. Við hlökkum til að taka flugið og til samstarfsins við íbúa Vestfjarða.
Fréttir af flugi Vesturbyggð Árneshreppur Byggðamál Mest lesið „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Erlent Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Innlent „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Segir ótímabært að ræða undanþágur Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Fleiri fréttir „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Sjá meira