Viðskipti innlent

Bein útsending: Leiðin að 2,5 milljarða króna styrk

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Erna Sif Arnardóttir lektor við verkfræði-og tölvunarfræðid. HR og forstöðumaður Svefnseturs.
Erna Sif Arnardóttir lektor við verkfræði-og tölvunarfræðid. HR og forstöðumaður Svefnseturs. Vísir/Egill

Dr. Erna Sif Arnardóttir, lektor við verkfræði- og tölvunarfræðideildir Háskólans í Reykjavík og forstöðumaður Svefnseturs HR, heldur fyrirlestur klukkan tólf í dag um vegferðina að hinum eftirsóknarverða styrk frá Horizon 2020 ESB.

Erna er ábyrgðarmaður verkefnisins, Svefnbyltingin, sem hlaut styrkinn en hann hljóðar upp á 15 milljónir evra eða 2,5 milljarða króna, til fjögurra ára.

Erna og reynslumikið þverfaglegt rannsóknarteymi við HR með akademíska starfsmenn við verkfræði-, tölvunar-, íþrótta- og sálfræðideildir HR leiddu umsóknina en auk HR eru í verkefninu 37 samstarfsstofnanir og fyrirtæki í Evrópu og Ástralíu. Þar á meðal íslensku fyrirtækin Nox Medical og Sidekick Health ásamt evrópska svefnrannsóknarfélaginu.

Í fyrirlestrinum mun Erna tala um flókið lærdómsferlið við styrkumsóknina og aðalmarkmið svefnbyltingarverkefnisins.


Tengdar fréttir

Íslands verður miðstöð svefnrannsókna

Ísland verður miðstöð alþjóðlegra svefnrannsókna næstu árin að sögn lektors við Háskólann í Reykjavík sem leiðir verkefnið Svefnbyltinguna. Verkefnið fékk tvo og hálfan milljarð í styrk sem er einn sá hæsti sem hefur verið veittur hér á landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×