Setur spurningamerki við útreikninga „grilllæknisins“ Kristín Ólafsdóttir skrifar 9. október 2020 19:55 Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm
Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins áréttar í færslu á Facebook í dag að hann hafi aldrei sagst vilja „engar aðgerðir“ til að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirufaraldursins hér á landi. Hann setur jafnframt spurningamerki við útreikninga Ragnars Freys Ingvarssonar, umsjónarlæknis Covid-göngudeildar Landspítala, sem sá síðarnefndi setti fram í pistli í gær, hvar hann gagnrýndi Brynjar fyrir afstöðu sína til kórónuveiruaðgerða. „Getur verið að Brynjar eigi í erfiðleikum með að skilja tölur og margfeldi þeirra?“ Brynjar fullyrti í samtali við mbl.is í gær að heilbrigðiskerfið gæti ráðið við fleiri Covid-sjúklinga. „Það er ekki bara Landspítalinn sem getur séð um sjúklinga. Það sem ég er að segja er að heilbrigðiskerfið í heild sinni getur ráðið við fleiri,“ sagði Brynjar og vísaði meðal annars til einkaaðila í heilbrigðisþjónustu. Þá sagði Brynjar að ríkisstjórnin hlyti að velta því oft upp hvort ástæða væri til þess að fara rólegar í sakirnar í sóttvarnaaðgerðum sem hefðu lamandi áhrif á samfélagið allt, með tilliti til þess að skaðsemi þeirra kynni að vera meiri en augljós heilsufarslegur skaði af völdum veirunnar sjálfrar. Ragnar kvaðst uggandi yfir þessum vangaveltum Brynjars í færslu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi. Hann sagði ljóst að ef faraldurinn fengi að dreifast um samfélagið án þess að gripið yrði til takmarkana myndi fjöldi sýktra margfaldast. „Getur verið að Brynjar eigi í erfiðleikum með að skilja tölur og margfeldi þeirra?“ spurði Ragnar. Færslu hans má sjá í heild hér fyrir neðan. Brynjar tjáir sig um færslu Ragnars á Facebook í dag. Þar kallar hann Ragnar „landsþekktan grillara í læknastétt“, og vísar þar til þess að Ragnar er þekktur matgæðingur undir nafninu Læknirinn í eldhúsinu. „Náði læknirinn slíkum hæðum í hroka að þingmaðurinn, sem kallar nú ekki allt ömmu sína í þeim efnum, bliknar í samanburðinum,“ skrifar Brynjar og bendir á að hann hafi aldrei sagst vilja sleppa öllum aðgerðum. „Þingmaðurinn, sem var fyrir sæmilega illa þokkaður víða, hefur fengið yfir sig holskefluna, ekki síst frá fólki sem telur mikilvægt fyrir lýðræðið að við tölum saman og skiptumst á skoðunum.“ Ragnar Freyr Ingvarsson, yfirlæknir Covid-göngudeildar Landspítalans.Stöð 2 Áhyggjur af heilbrigðiskerfinu Þá vísar Brynjar til þess að Ragnar velti því upp hvort sá fyrrnefndi ætti erfitt með að skilja tölur. Brynjar kveðst, þrátt fyrir þessar vangaveltur um talnalæsi sitt, sjá ósamræmi í reikningsdæmi Ragnars. „Hann byrjar á þvi að fullyrða að „fyrir hverja 1000 smitaða fáum við 32 innlagnir, 7 á gjörgæslu og 3 deyja, að minnsta kosti.“ Síðan segir talnaglöggi grillarinn í næstu setningu „að í þessari bylgju hafi um 1000 smitast, 24 eru á sjúkrahúsi, 4 á gjörgæslu og sem betur fer enginn dáið“. Þingmaðurinn er ekki svo ótalnaglöggur að sjá ekki ósamræmi í þessum tölum grillarans,“ skrifar Brynjar. Hann viðrar að endingu áhyggjur sínar af heilbrigðiskerfinu til lengri tíma litið. „En ótalnaglöggi þingmaðurinn getur þó reiknað út að með sama áframhaldi verður ekki hægt að leggja til jafn marga milljarða í heilbrigðiskerfið og nú er gert. Meira segja þekktir grillarar geta reiknað út hvað margir myndu deyja þá. Kannski nennir einhver síðar að reikna út hvað margir hafa dáið vegna þessara íþyngjandi aðgerða, sem nú hafa staðið lengi yfir. Þingmaðurinn er ekki svo illa innrættur að hann skilji ekki áhyggjur fólks. En þingmaðurinn er bara að velta fyrir sér heildarhagsmunina til lengri tíma litið. Löngu tímabært að sú umræða sé tekin og ekki viss um að rétt sé að þagga hana niður eins og grillmeistarar reyna.“ Færslu Brynjars má sjá í heild hér fyrir neðan.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Landspítalinn Heilbrigðismál Alþingi Tengdar fréttir Frekari aðgerðir fyrir fyrirtæki og listamenn í undirbúningi Forsætisráðherra segir frekari stuðning við fyrirtæki og listafólk í undirbúningi vegna tekjufalls. 9. október 2020 18:58 „Þetta er engin venjuleg flensa“ Ung kona sem greindist með Covid-19 í mars segist enn glíma við eftirköst veikindanna. Hún sé þó heppin miðaða við marga sem glími við erfið veikindi í langan tíma. 9. október 2020 18:38 Spítalinn að gera allt sem þykir árangursríkast gegn veirunni Páll Matthíasson forstjóri Landspítala segir ljóst að Landspítalinn sé nú að gera alla þá hluti sem taldir eru árangursríkastir í baráttunni við kórónuveiruna. 9. október 2020 18:29 Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Fleiri fréttir Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Sjá meira
Frekari aðgerðir fyrir fyrirtæki og listamenn í undirbúningi Forsætisráðherra segir frekari stuðning við fyrirtæki og listafólk í undirbúningi vegna tekjufalls. 9. október 2020 18:58
„Þetta er engin venjuleg flensa“ Ung kona sem greindist með Covid-19 í mars segist enn glíma við eftirköst veikindanna. Hún sé þó heppin miðaða við marga sem glími við erfið veikindi í langan tíma. 9. október 2020 18:38
Spítalinn að gera allt sem þykir árangursríkast gegn veirunni Páll Matthíasson forstjóri Landspítala segir ljóst að Landspítalinn sé nú að gera alla þá hluti sem taldir eru árangursríkastir í baráttunni við kórónuveiruna. 9. október 2020 18:29