Sveindís Jane og Agla María efstar í bæði mörkum og stoðsendingum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. október 2020 12:30 Sveindís Jane Jónsdóttir og Agla María Albertsdóttir hafa spilað frábærlega í sumar. Vísir/Samsett
Stóru leikirnir eru einmitt leikir fyrir stjörnur liðanna að sýna hvað þær geta og það verður krefjandi fyrir Íslandsmeistara Vals að stoppa tvo heitustu leikmenn Pepsi Max deildarinnar í stórleik Vals og Breiðabliks á morgun. Sveindís Jane Jónsdóttir og Agla María Albertsdóttir fóru á kostum í fyrri leik Breiðabliks og Vals þar sem Sveindís Jane skoraði þrennu og Agla María gaf þrjár stoðsendingar. Valur og Breiðablik mætast í úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn í Pepsi Max deild kvenna á morgun en leikurinn hefst klukkan 17.00 á Origo vellinum á Hlíðarenda og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Breiðablik hefur skorað 22 mörkum meira en Valur í Pepsi Max deild kvenna í sumar og þar hafa þessir tveir leikmenn liðsins farið á kostum, bæði í að skora mörkin sem og að gefa stoðsendingar. Sveindís Jane Jónsdóttir og Agla María Albertsdóttir eru núna í efstu sætunum á bæði listanum yfir flest skoruð mörk og flestar gefnar stoðsendingar. Sveindís Jane Jónsdóttir er markahæsti leikmaður Pepsi Max deildarinnar með 14 mörk í 14 leikjum. Hún hefur skorað einu marki meira en Agla María Albertsdóttir og Elín Metta Jensen. Agla María Albertsdóttir er aftur á móti sá leikmaður sem hefur gefið flestar stoðsendingar til þessa í sumar eða 15 stoðsendingar í 14 leikjum. Þar er Sveindís Jane Jónsdóttir aftur á móti í öðru sæti með 12 stoðsendingar. Sveindís Jane Jónsdóttir hefur alls komið að 29 mörk með beinum hætti (14 mörk, 12 stoðsendingar, 2 skot sem fylgt var eftir og 1 fiskað víti sem gaf mark) en Agla María Albertsdóttir hefur komið að 28 mörkum Blika (13 mörk og 15 stoðsendingar).
Pepsi Max-deild kvenna Breiðablik Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira