Sex tíma Pepsi Max fótboltaveisla á Sportinu í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. september 2020 12:01 Valsmaðurinn Haukur Páll Sigurðsson tæklar FH-inginn Björn Daníel Sverrisson í leik FH og Vals í Pepsi Max deildinni í fyrra. Vísir/Vilhelm
Fótboltaáhugafólk getur séð íslenska fótbolta í sjónvarpinu frá þrjú til rúmlega níu í kvöld eða í rúma sex tíma. Pepsi Max tilþrifin verða á nýjum tíma. Það eru óvenjulegir tímar í íslenskum fótbolta og vegna tafa á Íslandsmótinu í fótbolta vegna kórónuveirunnar hefur Knattspyrnusamband Íslands þurft að setja leiki á um miðjan dag í miðri viku til að geta klárað mótið fyrir 1. desember. Heil umferð fer þess vegna fram í Pepsi Max deild karla í fótbolta í dag í miðri viku í lok september og það verður auðvitað fylgst vel með gangi mála á Sportstöðvunum. Það eru bara flóðljós á tveimur af sex leikvöllum dagsins og þess vegna verður byrjað mjög snemma að spila fótbolta í dag. Fyrsti leikurinn hefst á Greifavelli á Akureyri klukkan 16.00 og er á milli KA og HK en fyrsti sjónvarpsleikur dagsins verður stórleikur FH og Vals í Hafnarfirði sem hefst klukkan 16.15. Þarna eru að mætast tvö efstu lið deildarinnar og Valsmenn nánast tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri. Klukkan 16.15 hefjast einnig tveir aðrir leikir en það eru leikir Fjölnismanna og Skagamanna í Grafarvogi og nágrannaslagur KR og Gróttu á Meistaravöllum. Þar sem fjórir leikirnir byrja svo snemma og báðir kvöldleikirnir verða sýndir beint þá verða Pepsi Max tilþrifin aðeins á öðrum tíma. Kjartan Atli Kjartansson og sérfræðingur hans munu byrja Pepsi Max tilþrifin klukkan 15.45 til að hita upp fyrir fjögur leikina og þá sérstaklega toppslag FH og Vals. Pepsi Max tilþrifin munu síðan gera upp fjóra fyrstu leiki dagsins strax eftir leik FH og Vals. Í framhaldinu af því verður síðan hægt að velja á milli þess að horfa á leik Breiðabliks og Stjörnunnar annars vegar og leik Fylkis og Víkinga hins vegar. Þeir hefjast báðir klukkan 19.15. Breiðablik-Stjarnan verður á Stöð 2 Sport en Fylkir-Víkingur á Stöð 2 Sport 3. Það verða því engin Pepsi Max tilþrifin eftir kvöldleikina en Pepsi Max Stúkan verður aftur á móti á vanalegum tíma annað kvöld.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira