Reece James sá til þess að Chelsea hóf tímabilið á sigri 14. september 2020 21:15 Reece James í þann mund er hann kom Chelsea aftur yfir í kvöld. Darren Walsh/Getty Images Hægri bakvörðurinn Reece James var allt í öllu er Chelsea hóf ensku úrvalsdeildina á sigri með. Liðið lagði Brighton & Hove Albion á útivelli með þremur mörkum gegn einu. Jorginho kom lærisveinum Frank Lampard yfir með marki úr vítaspyrnu eftir 23. mínútna leik. Timo Werner, einn af nýju leikmönnum Chelsea fiskaði vítið. Gestirnir frá Lundúnum voru 1-0 yfir í hálfleik en þegar tæpar tíu mínútur voru liðnar jafnaði Leandro Trossard metin fyrir heimamenn. Þá var komið að þætti Reece James en aðeins tveimur mínútum eftir að Brighton jafnaði kom hann Chelsea aftur yfir með þrumuskoti. Staðan því orðin 2-1 og aðeins tíu mínútum síðar var hún orðin 3-1 en þá kom James boltanum á Kurt Zouma sem skoraði þriðja mark gestanna. Fleiri urðu mörkin ekki og Chelsea hefur því tímabilið á sigri, lokatölur 3-1. Enski boltinn Fótbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti