Franskur ofursti sakaður um að leka upplýsingum til Rússa Vésteinn Örn Pétursson skrifar 30. ágúst 2020 16:38 Florence Parly er varnarmálaráðherra Frakklands. Zach Gibson/Getty
Ríkisstjórn Frakklands hefur látið hefja rannsókn á meintum öryggisbresti innan hersins. Nýleg skýrsla bendir til þess að háttsettur embættismaður innan franska hersins hafi stundað njósnir fyrir Rússland. Varnarmálaráðherra Frakklands, Florence Parly, hefur lítið viljað tjá sig um málið. Þó hefur Guardian eftir henni að verið væri að rannsaka málið og embættismaðurinn gæti átt von á málaferlum á hendur sér. Samkvæmt skýrslunni sem vísað er til í frétt Guardian var um að ræða undirofursta í franska hernum, sem staðsettur var á Ítalíu á vegum Atlantshafsbandalagsins (NATO). Maðurinn talar rússnesku og er sagður hafa sést með útsendara rússnesku herleyniþjónustunnar, GRU. Maðurinn er grunaður um að hafa séð Rússum fyrir leynilegum gögnum sem innihéldu viðkvæmar upplýsingar. Eins og gefur að skilja hefur ekki verið gefið upp hvert nákvæmt innihald gagnanna er. Þá er haft eftir heimildamanni innan franska dómskerfisins að maðurinn hefði verið ákærður og hnepptur í varðhald. Ákæran á hendur honum er sögð snúa að leka á „upplýsingum til erlendra stjórnvalda sem grafa undan hagsmunum þjóðarinnar.“ Maðurinn var handtekinn af frönsku leyniþjónustunni í Frakklandi, en hann var þá á leið aftur til Ítalíu eftir að hafa verið í fríi. Hann er í varðhaldi í París, höfuðborg Frakklands.
Frakkland Rússland NATO Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira