Ratko Mladic áfrýjar lífstíðardómi Atli Ísleifsson skrifar 25. ágúst 2020 13:39 Ratko Mladic í dómsal í morgun. Hann var meðal annars dæmdur fyrir þjóðarmorðið í Srebrenica í júlí 1995 þar sem um átta þúsund múslímskir karlar og drengir voru drepnir. EPA
Ratko Mladic, fyrrverandi hershöfðingi Bosníu-Serba, hefur hafið ferli við að áfrýja lífstíðardómi sem Alþjóðastríðsglæpadómstóllinn í málefnum fyrrverandi Júgóslavíu, dæmdi hann í árið 2017. Mladic var á sínum tíma sakfelldur fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyni vegna þátttöku sinnar í Bosníustríðinu á tíunda áratugnum. Mladic var meðal annars dæmdur fyrir þjóðarmorðið í Srebrenica í júlí 1995 þar sem um átta þúsund múslímskir karlar og drengir voru drepnir. BBC segir frá því að þrír dómara við dómstólinn voru viðstaddir í gegnum fjarbúnað, en áætlað er að dómshaldið muni standa í tvo daga. Því hefur áður verið frestað vegna heilsubrests hins 78 ára Mladic og heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Mladic mætti í dómsalinn í Haag í morgun. Var hann með andlitsgrímu til að byrja með en fjarlægði hana síðar. Hann mun ávarpa dóminn í tíu mínútur á morgun. Verjendur Mladic byrjuðu á því að segja að nauðsynlegt væri fyrir lækna að rannsaka ástand Mladic til að kanna hvort hann væri við nægilega góða heilsu til að taka þátt. Þá sögðu þeir að skjólstæðingur sinn hafi verið ranglega dæmdur.
Sameinuðu þjóðirnar Bosnía og Hersegóvína Serbía Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira