Fjórtán börn meðal þeirra sem voru drepin í árás á þorp í Kamerún Eiður Þór Árnason skrifar 17. febrúar 2020 19:15 Enn hefur ekki verið borin kennsl á hópinn. Here Maps
Minnst 22, þar af 14 börn voru drepin í vopnaðri árás á þorp í Kamerún á föstudag, að sögn Sameinuðu þjóðanna. Árásin átti sér stað í þorpinu Ntumbo í norðvesturhluta landsins og greina staðarmiðlar frá því að fólk hafi þar meðal annars verið brennt lifandi. Enginn hefur enn lýst yfir ábyrgð á árásinni en stjórnarandstöðuflokkur hefur sakað kamerúnska herinn um verknaðinn. Þarlend stjórnvöld, sem hafa barist gegn aðskilnaðarsinnum á svæðinu í þrjú ár, neita því að hafa átt þátt í árásinni. Fulltrúi Sameinuðu þjóðanna greindi fréttastofu breska ríkisútvarpsins frá því að þunguð kona hafi verið meðal hinna látnu. Íbúar eru sagðir vera mjög óttaslegnir eftir hörmungarnar en árásarmennirnir hafa hótað frekari aðgerðum á svæðinu. Talið er að minnst sex hundruð þorpsbúar hafi nú flúið svæðið. Rignyu Solange, íbúi í þorpinu, sagði í samtali við CNN að níu fjölskyldumeðlimir hennar hafi látið lífið á föstudag þegar öryggissveitir í leit að aðskilnaðarsinnum hafi kveikt í fjölda húsa á svæðinu. The Movement for the Rebirth of Cameroon, einn helsti stjórnarandstöðuflokkur landsins, segir „einræðisstjórnina“ og æðsta yfirmann kamerúnskra öryggissveita bera ábyrgð á verknaðinum.
Kamerún Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Fleiri fréttir Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Sjá meira