Þórsliðið væri í 2. sæti ef Domino´s deildin hefði byrjað 27. nóvember Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. janúar 2020 15:00 Hansel Atencia skoraði 31 stig á móti KR í gær en hér er hann í leik á móti ÍR á dögunum. Vísir/Bára
Þórsarar fögnuðu enn einum sigurinn í gærkvöldi þegar Akureyrarliðið vann Íslandsmeistara KR fyrir norðan. Þetta var fimmti sigur norðanliðsins í síðustu sjö deildarleikjum. Þórsliðið tapaði átta fyrstu deildarleikjum tímabilsins en í þeim áttunda stóð liðið vel í Stjörnumönnum sem gaf fyrirheit um bjartari og betri tíma. Þeir hafa heldur betur runnið upp. Þórsliðið fagnaði sínum fyrsta sigri á Hlíðarenda 28. nóvember og hefur síðan bætt við fjórum sigrum til viðbótar. Fyrir vikið setur Þórsliðið ekki lengur í fallsæti og er í raun aðeins einum sigri frá sæti í úrslitakeppninni. Svo gott hefur gengi Þórsliðsins verið síðustu vikur og mánuði að ef Domino´s deildin hefði byrjað 27. nóvember þá væru Þórsarar í öðru sæti ásamt Keflavík og Njarðvík. Stjörnumenn hafa unnið ellefu leiki í röð en af þessum ellefu var leikurinn á móti Þór fyrir norðan einn sá erfiðasti. Stjörnuliðið vann á endanum með þremur stigum eftir að hafa unnið upp átján stiga forskot Þórsara. Stjarnan gat leitað til Nikolas Tomsick sem tryggði liðinu sigur með þriggja stiga körfu rétt fyrir leikslok. Breytingin á liði Þórs á síðustu mánuðum hefur verið ótrúleg og er þjálfarinn Lárus Jónsson búinn að gera magnaða hluti síðan að liðið tapaði með 61 stigi á móti Njarðvík 15. nóvember. Auðvitað hafa nýir erlendir leikmenn breytt miklu en stökkið sem liðið hefur tekið síðan þá er samt ótrúlegt.Staðan í Domino´s deild karla frá 27. nóvember: 1. Stjarnan 100% (7 sigrar - 0 töp)2. Þór Akureyri 71% (5 sigrar - 2 töp) 2. Keflavík 71% (5 sigrar - 2 töp) 2. Njarðvík 71% (5 sigrar - 2 töp) 5. KR 57% (4 sigrar - 3 töp) 5. Haukar 57% (4 sigrar - 3 töp) 7. Tindastóll 43% (3 sigrar - 4 töp) 7. ÍR 43% (3 sigrar - 4 töp) 9. Þór Þorlákshöfn 29% (2 sigrar - 5 töp) 9. Grindavík 29% (2 sigrar - 5 töp) 9. Valur 29% (2 sigrar - 5 töp) 12. Fjölnir 0% (0 sigrar - 7 töp)
Dominos-deild karla Mest lesið Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Konate gæti farið frítt frá Liverpool Sport Dagskráin í dag: KA fer í Hafnarfjörðinn og golfið heldur áfram Sport Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Elías Már skrifar undir hjá kínversku liði Sport Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport Hákon skoraði tvö í vináttuleik Sport HM félagsliða „farsælasta keppni í heimi“ samkvæmt Infantino Sport „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Sport Landslið Íslands í golfi gerði það gott á EM Sport Fleiri fréttir Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn Sjá meira