Njarðvíkingar skipta aftur um erlendan leikmann og Eric Katenda snýr aftur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. janúar 2020 11:24 Eric Katenda í leik með Njarðvíkurliðinu í fyrravetur. Vísir/Bára
Karlalið Njarðvíkur hefur verið duglegt að gera breytingar á liði sínu í Domino´s deild karla á þessu tímabili og nú hafa Njarðvíkingar breytt aftur um erlenda leikmenn hjá liðinu. Njarðvíkingar segja frá því á heimasíðu sinni að Tevin Falzon sé á förum frá Njarðvík og að félagið sé að fá Eric Katenda til sín aftur. Möltubúinn Tevin Falzon kom til Njarðvíkur um áramótin og náði aðeins að spila fjóra leiki með liðinu. Í þessum fjórum leikjum var hann bara með 5,0 stig og 2,3 fráköst að meðaltali en aðeins 30 prósent skota hans rötuðu rétta leið. Tevin Falzon spilaði aðeins í rétt rúmar níu mínútur í síðasta leik sínum í Njarðvíkurbúningnum. Eric Katenda er 27 ára og skráður 206 sentímetrar á hæð. Hann er með franskt vegabréf. Katenda spilaði með austurríska félaginu Unger Steel Gunners fyrir áramót og var þá með 6,5 stig og 3,2 fráköst að meðaltali á 15,0 mínútum í leik. Eric Katenda kom til Njarðvíkur á sama tíma í fyrra og spilaði þá bikarúrslitin og ellefu síðustu leiki liðsins í deild og úrslitakeppni. Eric Katenda var með 15,2 stig og 9,8 fráköst að meðaltali í sex deildarleikjum en þær tölur duttu niður í 7,4 stig og 6,6 fráköst í leik í fimm leikjum liðsins í úrslitakeppninni. Eric Katenda skoraði aðeins samtals 12 stig í síðustu þremur leikjum Njarðvíkur í úrslitakeppninni en þeim tapaði Njarðvík öllum á móti ÍR. Það má búast við því að Eric Katenda ætli að bæta fyrir þennan lélega endi í ár. Katenda kemur til landsins í dag og er kominn með leikheimild hjá KKÍ. Hann verður því með liðinu á föstudag þegar Njarðvík mætir toppliði Stjörnunnar í Garðabæ.
Dominos-deild karla Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Shaq í Stjörnuna Körfubolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira