Rússar fá nýjan forsætisráðherra Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 16. janúar 2020 18:45 Hinn nýi forsætisráðherra var áður skattstjóri. Vísir/AP
Rússneska þingið samþykkti skipan nýs forsætisráðherra í dag. Ríkisstjórn Dímítrís Medvedev sagði óvænt af sér í gær er Pútín forseti tilkynnti um tillögur sínar um stjórnarskrárbreytingar. Mikhaíl Misjústín er ekki sérstaklega þekktur utan Rússlands. Undanfarin tíu ár hefur hann gegnt stöðu skattstjóra en nú er hann orðinn forsætisráðherra. Ástæðan er sú að Medvedev vildi gefa Pútín svigrúm til að gera miklar breytingar á rússnesku stjórnarskránni. Pútín hefur meðal annars lagt til að færa völd forsetaembættisins til þingsins og annarra stofnanna. Þetta þýðir að forsætisráðherraembættið yrði mun valdameira, ef breytingarnar eru samþykktar í þjóðaratkvæðagreiðslu, og þjóðaröryggisráð landsins sömuleiðis. Stjórnmálaskýrendur telja að markmið Pútíns sé að halda þannig völdum eftir kjörtímabilið en hann má samkvæmt núgildandi stjórnarskrá ekki gefa kost á sér í forsetakosningunum 2024. Gæti sum sé orðið valdamikill forsætisráðherra. Mísjústín ávarpaði þingið í dag og útlistaði stefnumál sín. Enginn greiddi atkvæði gegn skipan Mísjústíns en þingmenn Kommúnistaflokksins sátu hjá.
Rússland Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Innlent Fleiri fréttir Janet Jackson biðst afsökunar á undarlegum ummælum Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Sjá meira