Ferðaþjónustuaðilar úti á landi óttast að þurfa að vísa fólki frá Samúel Karl Ólason og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa 30. júlí 2020 14:12 Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Vísir/Arnar
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir það vonbrigði að gripið hafi verið til nýrra aðgerða vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar. Það muni valda miklum vandræðum og fjárhagslegu tjóni hjá atvinnurekendum og þá meðal annars hjá eigendum veitingahúsa og skemmtistaða. Mögulega kæmi til uppsagna. Hann segir að aðilar í ferðaþjónustu út á landi óttist að þurfa að vísa gestum frá á næstu dögum. „Það eru vonbrigði að það hafi þurft að grípa til harðari aðgerða, sérstaklega þetta snemma. Ég átti von á því að til þess myndi kannski koma í haust en þetta er heldur fyrr en við áttum von á og töluverð vonbrigði. Þetta mun valda töluverðum vandræðum, til dæmis hjá veitingahúsum og skemmtistöðum.“ Veitingahús og skemmtistaðir stæðu margir hverjir höllum fæti fyrir veturinn vegna mikils tekjuskorts. Jóhannes sagði veitingahús út á landi hafa verið að taka á móti innlendum ferðamönnum og ljóst sé að einhver röskun verði á því með endurkomu tveggja metra reglunnar. Það myndu þeir gera eins og þeir gætu og byggja á reynslunni frá því í vor. Það væri þó tilefni til að biðja fólk um að sýna atvinnurekendum skilning á næstunni. „Við þurfum öll að reyna að vinna þetta saman,“ sagði Jóhannes. Jóhannes sagðist ekki vilja leggja mat á hvort aðgerðirnar væru ótímabærar. Þeir sem best þekktu til í þessum efnum hefðu lagt þær til og reynt yrði að fara eftir því eins og áður. „Ég nota þetta orðalag því við höfum kannski verið að horfa fram á aðra bylgju með haustinu.“ Vonast væri til þess að ágúst myndi líða áður en slíka bylgja skylli mögulega á. „Það er þá raunin núna að það er ekki þannig og við verðum að vinna með þá stöðu. Okkar félagsmenn hafa þekkingu og reynslu og eru búnir að vera í framlínu frá því snemma í vor.“ Aðspurður hvort þörf væri á frekari efnahagsaðgerðum frá stjórnvöldum sagði Jóhannes nauðsynlegt að fylgjast með efnahagslífinu með haustinu. „Það er ekki gefið að það sem búið er að gera nú þegar sé allt sem gera þarf,“ sagði Jóhannes. Hann sagði Samtök ferðaþjónustunnar nú leita sér upplýsinga um hvernig ný ráðstöfun á landamærunum hafi áhrif á fyrirtæki sem flytji inn ferðamenn sem ætli að vera lengur en tíu daga á Íslandi. Tilkynnt var í dag að þeir sem komi frá áhættusvæðum og ætli að vera lengur á Íslandi en í tíu daga þurfi að fara í tvær skimanir. Einu sinni við komuna til landsins og svo aftur eftir fjóra til sex daga. Jóhannes segir að kanna þurfi hvaða áhrif sú framkvæmd hafi á fyrirtæki í ferðaþjónustu og hvað það þýði í raun. Mikil óvissa sé þar en það komi eflaust í ljós á næstu dögum. Hann sagði marga félagsmenn áhyggjufulla og þá sérstaklega aðila í veitingageiranum og aðila út á landi. Þeir hafi áhyggjur af því að geta ekki þjónustað þá aðila sem eru þegar hjá þeim á þeirra svæði. „Þeir myndu gjarnan vilja það en sjá fram á að það verði mjög flókið og þeir muni þurfa að vísa fólki frá. Það veldur mönnum áhyggjum, ekki síður en það tekjutap sem verður af þessu. Við erum í þessu til að þjónusta fólk og þetta kemur því miður í veg fyrir að við getum gert það eins vel og við getum.“
Ferðamennska á Íslandi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Viðskipti innlent „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Atvinnulíf Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Viðskipti innlent Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur Úr útvarpinu í orkumálin Viðskipti innlent Skipta um forstjóra hjá Origo Viðskipti innlent Milljónagreiðslur til Baldvins Jónssonar stöðvaðar Viðskipti innlent Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf „Algjört siðleysi“ Neytendur Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Fleiri fréttir Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Sjá meira