Tvær vítaspyrnur Ronaldo tryggðu Juventus stig gegn Atalanta Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 11. júlí 2020 21:35 Ronaldo fagnar fyrra marki sínu í kvöld. EPA-EFE/ALESSANDRO DI MARCO Vítaspyrnur Cristiano Ronaldo björguðu stigi fyrir Ítalíumeistarana í síðasta leik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni. Gestirnir komust yfir á 16. mínútu leiksins þegar Duvan Zapata kom þeim yfir. Argentínu-maðurinn Paulo Dybala var þá að dóla á miðlínunni og tapaði boltanum. Zapata og Alejandro Gomez stakk boltanum inn fyrir vörnina á Zapata sem kláraði færið einstaklega vel fram hjá Wojciech Szczesny í marki Juventus. Þannig var staðan allt þangað til á 55. mínútu þegar hendi var dæmt á Marten de Roon innan vítateigs og þar af leiðandi vítaspyrna. Ronaldo fór á punktinn og skoraði af öryggi. Varamaðurinn Ruslan Malinovsky kom gestunum aftur yfir þegar tíu mínútur voru til leiksloka og héldu gestirnir að þeir væru að ná í magnaðan sigur í baráttunni um meistaratitilinn en Atalanta hefði með sigri stokkið upp í 2. sæti deildarinnar. Allt kom fyrir ekki en aftur var dæmd hendi innan vítateigs í uppbótartíma. Aftur fór Ronaldo á punktinn og aftur skoraði Portúgalinn. Fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur því 2-2. Juventus er á toppi deildarinnar með 76 stig þegar sex umferðir eru eftir. Lazio kemur þar á eftir með 68 og Atalanta er í þriðja sæti með 67 stig. Ítalski boltinn