Innlent

Vígðu stein­bryggjuna í mið­borginni

Atli Ísleifsson skrifar
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Gísli Gíslason hafnarstjóri.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Gísli Gíslason hafnarstjóri. Reykjavíkurborg

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, vígði steinbryggjuna á skáldatorgi á mótum Hafnarstrætis og Tryggvagötu í gær.

Á vef borgarinnar segir að bryggjan sé eitt helsta kennileiti borgarinnar og eitt merkasta mannvirki Reykjavíkurhafna sem eigi rætur að rekja til gömlu bæjarbryggjunnar sem var byggð í Reykjavík 1884.

Steinbryggjan hafi verið mikilvæg samgöngubót fyrir Reykjavík allt frá því hún leysti gömlu trébryggjurnar af hólmi undir lok 19. aldar og þar til að hún hvarf undir landfyllingu árið 1940.

Steinbryggja í Reykjavíkurhöfn árið 1937.Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Haft er eftir Degi að steinbryggjan hafi gegnt ótrúlega mikilvægu hlutverki við þróun borgarinnar.

„Við sjáum að mannfjöldi jókst stórum skrefum ár frá ári í Reykjavík og var það ekki síst vegna þess að við vorum loksins búin að fjárfesta í almennilegri höfn. Nú gegnir Steinbryggjan hinsvegar öðru hlutverki og er orðin að áfangastað í borginni þar sem maður getur setið í skjólinu innan um nýju húsin á Hafnartorgi, fengið sér kaffibolla og notið borgarlífsins,“ sagði borgarstjórinn við vígslu bryggjunnar.

Dönsku konungshjónin, Christian X og Alexandrine ganga á rauðum dregli upp Steinbryggjuna, 26. júní 1921.Ljósmyndasafn Reykjavíkur / Ólafur Magnússon

„Hefði verið gaman að vita af þessu“

Umhverfis- og skipulagssvið borgarinnar sá svo um að sníða henni þann búning sem hún er í núna með tilsögn frá Minjastofnun Íslands og Borgarsögusafni. Hönnun hins nýja torgs var í höndum Landmótunar, lýsing var í höndum Mannvits og Faxaflóahafnir sáu um menningarmerkingar segir í tilkynningunni.

Ef marka má Facebook-síðu Landmótunar virðist sem að fulltrúum þess hafi hins vegar ekki boðið til vígslunnar þó að Reykjavíkurborg sé þar óskað til hamingju með vígsluna.

Á torginu við bryggjuna er ljóð Vilborgar Dagbjartsdóttur Vetur meitlað í stein við skáldabekk. 

„Bekkurinn tengist rafrænum kóða sem gera snjallsímaeigendum kleift að hlusta á ljóðalestur. Bókmenntaborgin Reykjavík stýrir því verkefni, sem snýst um að færa orðlistina út á stræti og torg, og gera hana sýnilega sem varanlegan hluta af umhverfinu,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×