113 ára kona jafnaði sig af Covid-19 Samúel Karl Ólason skrifar 12. maí 2020 09:41 Byrjað er að draga úr félagsforðun á Spáni. AP/Emilio Morenatt
Hin 113 ára gamla María Branyas er talin vera elsti einstaklingurinn sem hefur jafnað sig af Covid-19, sjúkdómnum sem nýja kórónuveiran veldur. Branyas sem býr í Olot í Girona á Spáni varð 113 ára gömul í byrjun mars og er elsti núlifandi einstaklingur landsins. Hún fæddist þann 3. mars árið 1907 í San Francisco í Bandaríkjunum. Samkvæmt umfjöllun El Mundo greindist hún með veiruna í apríl en hefur nú jafnað sig. Dóttir hennar segir hana við góða heilsu þó hún hafi áður misst mest alla sjónina og heyrn. Branyas segir að henni hafi leiðst mikið í einangruninni. Nú vilji hún hitta sem flesta og ræða allt sem hún getur. Þá hefur hún viljað koma þökkum til starfsmanna dvalarheimilisins sem hún býr á. Branyas eignaðist þrjú börn, ellefu barnabörn, með það elsta orðið sextugt, og þrettán barnabarnabörn. Samkvæmt El Mundo hlakkar fjölskylda Branyas mjög til þess að geta heimsótt hana aftur.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Spánn Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Um helmingur farþega komst lífs af Erlent Fleiri fréttir Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjá meira