Erlent

Sex látnir eftir þyrlu­slys á Hawa­ii

Atli Ísleifsson skrifar
Frá Napoli-ströndinni á Kauai.
Frá Napoli-ströndinni á Kauai. AP

Líkamsleifar sex manna hafa fundist eftir að þyrluslys varð í fjallshlíðum á eyjunni Kauai á Hawaii.

Talsmaður yfirvalda segir sjö manns hafa verið um borð, en að engin teikn séu um að nokkur hafi komist lífs af. Leit að sjöunda manninum verður fram haldið þegar birtir á ný og ef veðuraðstæður leyfa.

Að sögn talsmanns strandgæslunnar á Hawaii er talið að tveir farþeganna hafi verið börn.

Um var að ræða ræða útsýnisþyrlu á vegum Safari Helicopters. Var þyrlunni flogið um hina klettóttu Napoli-strönd en vitað er að veðuraðstæður breyttust skyndilega með mikilli úrkonu og sterkari vindi þegar slysið varð.

Aðstæður til leitar hafa verið mjög erfiðar, bæði vegna veðurs og erfiðs leitarsvæðis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×