Draga uppsögn Hoyvíkursamningsins til baka Atli Ísleifsson skrifar 28. desember 2019 13:35 Frá Hoyvík í Færeyjum. Getty
Færeyska þingið hefur samþykkt að hætta verði að segja upp Hoyvíkursamningnum. Þetta er gert eftir að Færeyingar og Íslendingar náðu saman um breytingar á samningnum. Hoyvíkursamningurinn er fríverslunarsamningur milli Færeyinga og Íslendinga sem undirritaður var árið 2005. Færeyingar sögðu upp samningnum fyrir um ári og átti hann að falla úr gildi um komandi áramót. Ástæða uppsagnar Færeyinga sneri helst að eignarhaldi í sjávarútvegsfyrirtækjum, en samkvæmt færeyskum fiskveiðilögum, sem gerðar voru breytingar á í lok síðasta árs, var lagt bann við erlenda eignaraðild í sjávarútvegsfyrirtækjum. Samherji hefur hins vegar átt eignarhlut í sjávarútvegsfyrirtækinu Framherja. Ný stjórn tók við völdum í Færeyjum í haust og einsetti sér að vinna að því að halda samningnum í gildi. Náðist að lokum samkomulag um að ekki þurfi að breyta eignarhaldi í sjávarútvegsfyrirtækjum sem nú er í gildi. Alls greiddu sextán þingmenn atkvæði með því að draga uppsögnina til baka, en þrettán voru því andvígir.
Færeyjar Utanríkismál Mest lesið Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Viðskipti innlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Fleiri fréttir Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Sjá meira