Leicester City gerði 1-1 jafntefli við nýliða Norwich City í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Fyrir leikinn hafði Leicester unnið átta leiki í röð. Refirnir eru í 2. sæti deildarinnar með 39 stig, tíu stigum á eftir Liverpool.
Teemu Pukki kom Norwich yfir á 26. mínútu eftir sendingu frá Emiliano Buendía. Leicester jafnaði í 1-1 á 38. mínútu þegar Tim Krul, markvörður Norwich, skoraði sjálfsmark og þar við sat.
Norwich er í nítjánda og næstneðsta sæti deildarinnar með tólf stig, þremur stigum frá öruggu sæti.
Sheffield United komst upp í 5. sæti deildarinnar með 2-0 sigri á Aston Villa í nýliðaslag á Bramall Lane.
John Fleck skoraði bæði mörk Sheffield United. Þetta er í fyrsta sinn sem Skotinn skorar tvö mörk í leik á ferlinum.
Jack Grealish skaut í slá úr vítaspyrnu fyrir Villa á 78. mínútu. Liðið er í 17. sæti deildarinnar.
Burnley vann afar mikilvægan sigur á Newcastle United, 1-0. Chris Wood skoraði eina mark leiksins með skalla á 58. mínútu.
Jóhann Berg Guðmundsson er enn frá vegna meiðsla hjá Burnley sem er í 12. sæti deildarinnar, einu sæti neðar en Newcastle.
Norwich stöðvaði sigurgöngu Leicester

Tengdar fréttir

Liverpool með ellefu stiga forskot eftir sigur á botnliðinu
Mohamed Salah skoraði bæði mörk Liverpool í sigri á Watford.

Fjórða tap Chelsea í síðustu fimm leikjum
Bournemouth gerði góða ferð til London og vann 0-1 sigur á Chelsea.