Óhugnanlegt atvik á Brúnni Aron Guðmundsson skrifar 4. maí 2026 17:57 Flytja þurfti Derry af velli á sjúkrabörum Vísir/Getty Jesse Derry, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea er á batavegi eftir að hafa hlotið þungt höfuðhögg í leik gegn Nottingham Forest í dag og í kjölfarið fluttur á sjúkrahús.
Um fyrsta byrjunarliðsleik Derry var að ræða í ensku úrvalsdeildinni en það var skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks sem höfuð hans og Zach Abbott, leikmanns Nottingham Forest skullu saman er þeir reyndu að ná til boltans á undan hvor öðrum. Hinn átján ára gamli Derry lá óvígur eftir á vellinum og þurfti að gefa honum súrefni. Hann var seinna borinn af velli á sjúkrabörum og fluttur á nærliggjandi sjúkrahús. Abbott var dæmdur brotlegur og fékk Chelsea því vítaspyrnu. Cole Palmer brást hins vegar bogalistin af vítapunktinum. Klippa: Óhugnanlegt atvik í Chelsea - Nottingham Forest Í yfirlýsingu frá Chelsea segir að Jesse sé með meðvitund, geti tjáð sig og að hann sé nú í rannsóknum. Jesse Derry has been taken to hospital as a precaution following his first-half substitution during today’s #PL game against Nottingham Forest.Jesse is conscious, talking and undergoing precautionary checks. We wish him a speedy recovery and thank the medical staff for their… pic.twitter.com/qVesMIVMd1— Chelsea FC (@ChelseaFC) May 4, 2026 Jesse Derry er sonur fyrrverandi atvinnumannsins í fótbolta, Shaun Derry, sem lék á sínum tíma í ensku úrvalsdeildinni. Borinn af velliVísir/Getty Á heildina litið var um hræðilegan dag að ræða fyrir Chelsea en liðið tapaði leiknum gegn Nottingham Forest 3-1 og minnka líkur liðsins á Evrópusæti á sama tíma. Sigurinn hins vegar gulls ígildi fyrir strákana úr Skírisskógi sem eru nú sex stigum frá fallsæti þegar að þrjár umferðir eru eftir af deildinni.
Enski boltinn Chelsea FC Nottingham Forest Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira