Menn í vinnu vinna meiðyrðamál gegn Maríu Lóu Jakob Bjarnar skrifar 3. desember 2019 14:01 Þung orð voru látin falla í febrúar á þessu ári vegna gruns um að Rúmenum nokkrum væri haldið hér í vinnuþrælkun. Lengst til vinstri er Halldór Grönvold hjá ASÍ. visir/sigurjón „
Loksins féll í dag dómur í meiðyrðamálinu Menn í vinnu ehf. gegn Maríu Lóu Friðjónsdóttur. Niðurstaðan er mjög afgerandi og eru tvenn ummæli hennar ómerkt auk þess sem hún er dæmd til að greiða kostnað af birtingu dóms og málskostnað að fjárhæð 1.300.000 krónur,“ segir Jóhannes S. Ólafsson lögmaður Höllu Rutar Bjarnadóttur hjá Mönnum í vinnu. Vísir hefur dóminn undir höndum en Jóhannes segir að í honum megi glögglega sjá að ekki hafi tekist að sanna neitt sem heita megi vafasamt hátterni fyrirtækisins. „Nákvæmlega ekki neitt.“Ummælin dæmd dauð og ómerk Mál starfsmannaleigunnar var mjög í deiglunni fyrr á árinu en þá greindi fréttastofa Stöðvar 2 frá því að grunur léki á um að fjöldi rúmenskra verkamanna væru í nauðungarvinnu á Íslandi. Ýmsir létu þung orð falla meðal annarra María Lóa Friðjónsdóttir sérfræðingur í vinnustaðaeftirliti hjá ASÍ. Í dómsorði segir að eftirfarandi ummæli hennar skuli vera dauð og ómerk:María Lóa var dæmd fyrir meiðyrði í dag og gert að greiða 1,3 milljón króna í málskostnað og birtingu dóms.así„og ég er búin að sjá bankareikninga hjá þeim þar sem fyrirtækið leggur inn og tekur jafn harðan út aftur. Mennirnir komast ekki neitt og þeir eru ekki á launum“ og „Menn í vinnu legðu inn á þá til dæmis 100.000 en færi síðan 90.000 út aftur. Ég sá þessar færslur og spurði hvernig þetta væri hægt en þá vissu þeir það ekki almennilega en að Halla Rut sem á fyrirtækið vildi alltaf fá að sjá og vita PIN númer þeirra svo það virðist sem Menn í Vinnu ehf. hafi aðgang að heimabönkum mannanna.“ Þriðju ummælin sem stefnt var vegna flokkuðust undir gildismat og þar með var Maríu Lóu frjálst að segja: „Að mínu mati er þetta nauðungarvinna og þrælahald. Þetta er mjög slæm aðstaða.“Fyrirtækið gjaldþrota og líf fyrirsvarsmanna í rúst „Hér er um mjög mikilvæga niðurstöðu að ræða þar sem að réttlætið sigraði að vissu leyti. Fyrirtækið situr auðvitað eftir gjaldþrota og líf fyrirsvarsmanna þess nánast í rúst, en þetta er þó gríðarlega mikilvæg viðurkenning. Dómarinn tók mjög sterkt til orða og tók afgerandi efnislega niðurstöðu, þess efnis að ekkert væri hæft í hinum hrikalegu ásökunum sem bornar voru fram í fjölmiðlum á hendur fyrirtækinu og fyrirsvarsmönnum þess,“ segir Jóhannes en hann birti færslu á Facebook þar sem hann fór yfir málið eins og það horfir við honum.Jóhannes lögmaður fagnar sigri. En, hann segir að afleiðingar meiðyrðanna séu þær að fyrirtækið sé gjaldþrota og líf fyrirsvarsmanna þess í rúst.Jóhannes segir að vegna þess að fyrirtækið var orðið gjaldþrota hafi ekki verið unnt að fara í frekari málaferli. Þeir sem höfðu fengið kröfubréf og aðvörun um málsókn voru þau Sólveig Anna Jónsdóttir og Viðar Þorsteinsson hjá Eflingu, Halldór Grönvold hjá ASÍ og Unnur Sverrisdóttir hjá Vinnumálastofnun. „Unni var reyndar stefnt líka en umbjóðandi minn gat ekki lagt fram tryggingu fyrir málskostnaði þegar félagið fór í þrot og því ekki hægt að halda því máli til streitu,“ segir Jóhannes.Telur Jóhannes að þau hefðu öll verið fundin sek um meiðyrði samkvæmt þessum dómi?„Það er flóknara mál. Einhverjir hefðu klárlega setið í súpunni, en það þyrfti að taka afstöðu til hverra ummæla fyrir sig. Eins og sjá má í dómnum þá voru tvenn ummæli ómerkt en þau þriðju metin sem gildisdómur, það er að segja mat Maríu Lóu og það er verndað af tjáningarfrelsinu.“UppfærtDóminn í heild má lesa á vef dómstólsins.
Dómsmál Vinnumarkaður Tengdar fréttir Mál Rúmena sé eitt það umfangsmesta á íslenskum vinnumarkaði Framkvæmdastjóri Eflingar segir stærsta hluta máls rúmenskra verkamanna snúa að því að sanna að þeir hafi verið beittir nauðung, með því að sýna fram á að þeir hafa verið algjörlega uppá atvinnurekenda komnir, bæði hvað varðar laun og húsnæði. Svo umfangsmikil mál séu fátíð á íslenskum vinnumarkaði. 18. febrúar 2019 19:00 Átján Rúmenar leitað til Eflingar Verkamenn sem störfuðu fyrir starfsmannaleiguna Menn í vinnu eru sagðir sitja uppi með stóra skattaskuld. Verktaki sem réði menn til vinnu frá starfsmannaleigunni telur að vitundarvakning hafi orðið meðal verktaka um slæm kjör verkafólks. 8. febrúar 2019 18:34 Menn í vinnu krefjast skaðabóta frá Sýn, Eiríki og Unni Sverrisdóttur Starfsmannaleigan hefur nú krafið í það minnsta átta aðila um skaðabætur. 1. mars 2019 14:14 Rannsaka hvort fjöldi Rúmena sé í nauðungarvinnu: „Ég efast um að fólk myndi bjóða húsdýrum svona aðstæður eða aðbúnað“ Grunur leikur á að fjöldi Rúmena sé í nauðungarvinnu hjá starfsmannaleigu á höfuðborgarsvæðinu. Verkamenn sem fréttastofa ræddi við segjast vera peningalausir, svangir og hræddir. ASÍ, Efling og Vinnumálastofnun rannasaka málið og hefur lögreglu verið gert viðvart. 7. febrúar 2019 19:00 2,5 milljón króna stjórnvaldssekt lögð á Menn í vinnu Vinnumálastofnun hefur lagt 2,5 milljón króna stjórnvaldssekt á fyrirtækið Menn í vinnu. 16. apríl 2019 20:01 Forkólfum í verkalýðshreyfingunni stefnt vegna ummæla um Menn í vinnu Lögmaður starfsmannaleigunnar segir hin harkalegu ummæli algerlega tilhæfulaus. 28. febrúar 2019 16:45 Menn í vinnu pakka saman Starfsmannaleigan Menn í vinnu hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta, en fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota í síðustu viku. 25. september 2019 12:03 Mál Rúmena í algjörum forgangi: "Ég var sendur til að tala við þá, bara hræða þá“ Enn fjölgar þeim rúmensku verkamönnum sem leita réttar síns vegna meintra brota íslenskrar starfsmannaleigu eða á fjórða tug manna. Fyrrum aðstoðarmaður stjórnanda starfsmannaleigunnar segist hafa verið látinn ræða við mennina, jafnvel hræða þá, ef þeir töluðu um að leita réttar síns vegna vangoldinna launa. 11. febrúar 2019 19:00 Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Fleiri fréttir Launmorðingjar ráðnir hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann Sjá meira
Mál Rúmena sé eitt það umfangsmesta á íslenskum vinnumarkaði Framkvæmdastjóri Eflingar segir stærsta hluta máls rúmenskra verkamanna snúa að því að sanna að þeir hafi verið beittir nauðung, með því að sýna fram á að þeir hafa verið algjörlega uppá atvinnurekenda komnir, bæði hvað varðar laun og húsnæði. Svo umfangsmikil mál séu fátíð á íslenskum vinnumarkaði. 18. febrúar 2019 19:00
Átján Rúmenar leitað til Eflingar Verkamenn sem störfuðu fyrir starfsmannaleiguna Menn í vinnu eru sagðir sitja uppi með stóra skattaskuld. Verktaki sem réði menn til vinnu frá starfsmannaleigunni telur að vitundarvakning hafi orðið meðal verktaka um slæm kjör verkafólks. 8. febrúar 2019 18:34
Menn í vinnu krefjast skaðabóta frá Sýn, Eiríki og Unni Sverrisdóttur Starfsmannaleigan hefur nú krafið í það minnsta átta aðila um skaðabætur. 1. mars 2019 14:14
Rannsaka hvort fjöldi Rúmena sé í nauðungarvinnu: „Ég efast um að fólk myndi bjóða húsdýrum svona aðstæður eða aðbúnað“ Grunur leikur á að fjöldi Rúmena sé í nauðungarvinnu hjá starfsmannaleigu á höfuðborgarsvæðinu. Verkamenn sem fréttastofa ræddi við segjast vera peningalausir, svangir og hræddir. ASÍ, Efling og Vinnumálastofnun rannasaka málið og hefur lögreglu verið gert viðvart. 7. febrúar 2019 19:00
2,5 milljón króna stjórnvaldssekt lögð á Menn í vinnu Vinnumálastofnun hefur lagt 2,5 milljón króna stjórnvaldssekt á fyrirtækið Menn í vinnu. 16. apríl 2019 20:01
Forkólfum í verkalýðshreyfingunni stefnt vegna ummæla um Menn í vinnu Lögmaður starfsmannaleigunnar segir hin harkalegu ummæli algerlega tilhæfulaus. 28. febrúar 2019 16:45
Menn í vinnu pakka saman Starfsmannaleigan Menn í vinnu hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta, en fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota í síðustu viku. 25. september 2019 12:03
Mál Rúmena í algjörum forgangi: "Ég var sendur til að tala við þá, bara hræða þá“ Enn fjölgar þeim rúmensku verkamönnum sem leita réttar síns vegna meintra brota íslenskrar starfsmannaleigu eða á fjórða tug manna. Fyrrum aðstoðarmaður stjórnanda starfsmannaleigunnar segist hafa verið látinn ræða við mennina, jafnvel hræða þá, ef þeir töluðu um að leita réttar síns vegna vangoldinna launa. 11. febrúar 2019 19:00