Messi er aðdáandi Sadio Mane Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. desember 2019 15:15 Sadio Mane Getty/Jean Catuffe
Lionel Messi vann Gullboltann í sjötta sinn í vikunni og fór þar með fram úr Cristiano Ronaldo. Messi átti magnað tímabil með Barcelona en þurfti að sætta sig við það að detta út fyrir Liverpool í Meistaradeildinni. Með Liverpool liðinu spilar einmitt Senegalinn Sadio Mane og Messi vildi sjá Mane enda ofar í kjörinu á besta leikmanni heims.Sadio Mane has an admirer pic.twitter.com/hBNmIPuICw — B/R Football (@brfootball) December 5, 2019„Það er synd að sjá Sadio Mane bara enda í fjórða sæti,“ sagði Lionel Messi sem sagðist sjálfur hafa kostið Sadio Mane þann besta. „Það hafa bara verið margir frábærir leikmenn í heiminum á þessu ári. Þess vegna er mjög erfitt að velja einn úr hópnum. Ég kaus samt Sadio Mane af því að hann er leikmaður sem ég er hrifinn af,“ sagði Messi. Á milli Lionel Messi og Sadio Mane voru þeir Virgil Van Dijk hjá Liverpool Cristiano Ronaldo hjá Juventus. „Mane átti frábært ár og þetta var líka magnað ár hjá liði hans Liverpool. Þess vegna valdi ég hann en ég endurtek að það komu margir frábærir leikmenn til greina og þetta var því erfitt val,“ sagði Messi.Leo Messi: "It's a shame to see Mane finish in fourth place." It's time to start putting respect on Mane's name#Messi#Manepic.twitter.com/N48MyEKkGy — GiveMeSport (@GiveMeSport) December 5, 2019Sadio Mane deildi markakóngstitlinum í ensku úrvalsdeildinni með þeim Pierre-Emerick Aubameyang og Mohamed Salah en allir skoruðu þeir 22 mörk. Liverpool lenti í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni, einu stigi á eftir Manchester City, þrátt fyrir að tapa aðeins einum leik. Liðið vann síðan Meistaradeildina eftir 2-0 sigur á Tottenham í úrslitaleiknum. Mane skoraði 3 mörk í útsláttarkeppninni þar af tvö þeirra í útisigrinum á Bayern München. Liverppool hefur nú leikið yfir 30 leiki í röð án taps og Sadio Mane er með 13 mörk og 7 stoðsendingar í 21 leik í öllum keppnum á þessu tímabili.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fleiri fréttir Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Sjá meira