Tvítugur karlmaður í einangrun grunaður um tilraun til manndráps Nadine Guðrún Yaghi og Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifa 21. október 2019 11:09 Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald um helgina á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Hann sætir einangrun. vísir/vilhelm
Tvítugur karlmaður var um helgina úrskurðaður í gæsluvarðhald til næstkomandi föstudags, 25. október, grunaður um mjög grófa líkamsárás gagnvart kærustu sinni í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt laugardags. Er málið meðal annars rannsakað sem tilraun til manndráps og sætir maðurinn nú einangrun. Þetta staðfestir Hulda Elsa Björgvinsdóttir, yfirmaður ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Hún segir málið á viðkvæmu stigi og að ekki verði veittar frekari upplýsingar að svo stöddu.Uppfært klukkan 12:13: Eftirfarandi tilkynning barst frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu rétt í þessu vegna málsins: Karlmaður um tvítugt var um helgina í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í sex daga gæsluvarðhald, eða til 25. október, á grundvelli rannsóknarhagsmuna á kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás.Tilkynning um málið barst lögreglu aðfaranótt laugardags og var maðurinn handtekinn á vettvangi miðsvæðis í borginni. Árásarþoli, ung kona, var fluttur á slysadeild. Rannsókn málsins miðar vel.Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Sjá meira