Ný bensínstöð markar tímamót Stefán Ó. Jónsson skrifar 10. október 2019 14:45 Í vesturhorni bílastæðisins við Lindir rís nú bensínstöð N1. Jón Stefánsson
Á horni bílastæðisins við verslunarkjarnann Lindir í Kópavogi eru hafnar framkvæmdir sem marka ákveðin tímamót. Þar mun að endingu rísa fyrsta bensínstöðin á lóð Krónunnar, áþreifanlegur ávöxtur samruna N1 og Festis og birtingarmynd þess sem koma skal. Framkvæmdirnar hófust í upphafi vikunnar og standa vonir til að þeim verði lokið „öðru hvor megin við áramót,“ að sögn Hinriks Arnar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra N1. Stöðin verður sjálfsafgreiðslustöð, rekin undir merkjum N1 en auk bensín- og díseldælna verða jafnframt sett upp rafhleðslustæði. Samruni N1 og Festis, sem rekur m.a. Krónuna og Elko, um mitt síðasta ár var lýst sem einni afleiðingu „Costco-áhrifanna“ svokölluðu. Innreið bandarísku heildverslunarinnar vorið 2017, sem velti 28 milljörðum króna í fyrra, hefur haft margvísleg áhrif á íslenskan smásölumarkað. Til að mynda lögðu verslanirnar Kostur og Víðir upp laupana auk þess sem Hagar og Olís sameinuðust.Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1.FBL/StefánSjá einnig: Olíufélögin í uppbyggingu Samrunarnir tveir fólu í sér samlegðaráhrif sem segja má að Costco hafi frumsýnt hér á landi: Að ná fram betri nýtingu lóða með því að opna bensínstöðvar á bílastæðum stórra verslana; eins og Krónunnar í tilfelli N1 eða verslana Haga í tilfelli Olís. Bensínstöðin sem nú rís við Lindir er einmitt í þeim anda. Eftir að hafa lokað tveimur benínstöðvum í Hæðar- og Hlíðarsmára í Kópavogi, og uppfyllt þannig eitt af skilyrðunum Samkeppniseftirlitsins fyrir samrunanum, tekst N1 þannig að nýta fermetra sína betur - um leið og viðskiptavinir nýta búðarferðina betur. Þetta er í takt við þróun verslunarhúsnæðis erlendis að sögn Hinriks. Hann segir að þrátt fyrir að framkvæmdir séu ekki hafnar við aðrar, sambærilegar bensínstöðvar á lóðum Festis sé samtalið hafið. Vonir standi til að stöðvarnar verði svokallaðar fjölorkustöðvar, þar sem ökumenn geti fyllt á margvíslega tanka. Hugsunin sé að viðskiptavinir geti klárað öll sín helstu viðskipti á sama stað í einni ferð. „Rafhleðslustöðvar fyrir utan matvöruverslanir eru klárlega alveg skynsamlegar, þú ert kannski 20 mínútur inni í búðinni og getur nýtt tímann til að fylla á bílinn.“ N1 á nú í viðræðum við Reykjavíkurborg um að færa bensínstöð félagsins á Ægissíðu yfir á lóð Krónunnar á Fiskislóð. Þannig væri hægt að hefja annars konar uppbyggingu á Ægissíðulóðinni, til að mynda að reisa þar íbúabyggð. Þær viðræður hafa þó gengið hægar en í Kópavogi, en ætla má að áform borgarstjórnar um að fækka bensínstöðvum innan borgarmarkanna leiki þar hlutverk.
Bensín og olía Kópavogur Neytendur Skipulag Tengdar fréttir Raunhæfara að fækka bensínstöðvum í borginni um helming á tíu árum Það er eðlileg þróun að fækka bensínstöðvum á höfuðborgarsvæðinu að sögn forstjóra félagsins Festi, sem á meðal annars N1 bensínstöðvarnar. Hann telur tímaramma borgarráðs þó vera of knappan, líklegra sé að það taki tíu ár en ekki sex að fækka bensínstöðvum í borginni um helming. 11. maí 2019 12:45 Olíufélögin í uppbyggingu Þrjú stærstu olíufélögin sitja á verðmætum lóðum og skoða tækifæri til uppbyggingar á fasteignum. Horfur á minnkandi olíunotkun á næstu áratugum eru að breyta landslaginu á markaðinum. Sala á olíu og dagvöru mun á endanum renna 26. júní 2019 07:45 Mest lesið „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Norskir komast í Víking gylltan Neytendur Setur háa tolla á Evrópu Viðskipti erlent Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Viðskipti innlent Ása Steinars vann sigur gegn bandarísku markaðsfyrirtæki Viðskipti erlent Mögulega búið að hakka sig inn á Teams samskiptin þín og fleira Atvinnulíf Strákar og stálp fá styrk Viðskipti innlent Hildur ráðin forstjóri Advania Viðskipti innlent Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Viðskipti innlent Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Strákar og stálp fá styrk Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Hildur ráðin forstjóri Advania Atvinnuleysi eykst Skipti í brúnni hjá Indó Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri „Það er gjá að myndast á leigumarkaðnum“ Viðar nýr sölustjóri Wisefish Ráðinn framkvæmdastjóri COWI á Íslandi Semja um fjögurra milljarða króna lán Þak styrkja til turnanna tveggja lækkað Efnt til nýrrar loðnuleitar í kapphlaupi við tímann Verður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Emblu Medical Gjaldþrota meðhöndlari Auðunn ráðinn viðskiptastjóri Reita Ráðin mannauðs- og gæðastjóri Hörpu „Minnstu loðnuvertíð sögunnar að ljúka“ Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Landsvirkjun greitt út níutíu milljarða á fjórum árum Halda á miðin þrátt fyrir kvóta „upp í nös á ketti“ Þurfa að taka koffíndrykk á reynslu Stjórnir Samkaupa og Heimkaupa undirrita samrunasamning Örkvóti í loðnu gæti skilað milljarði í útflutningstekjur Afkoma ársins undir væntingum Sjá meira
Raunhæfara að fækka bensínstöðvum í borginni um helming á tíu árum Það er eðlileg þróun að fækka bensínstöðvum á höfuðborgarsvæðinu að sögn forstjóra félagsins Festi, sem á meðal annars N1 bensínstöðvarnar. Hann telur tímaramma borgarráðs þó vera of knappan, líklegra sé að það taki tíu ár en ekki sex að fækka bensínstöðvum í borginni um helming. 11. maí 2019 12:45
Olíufélögin í uppbyggingu Þrjú stærstu olíufélögin sitja á verðmætum lóðum og skoða tækifæri til uppbyggingar á fasteignum. Horfur á minnkandi olíunotkun á næstu áratugum eru að breyta landslaginu á markaðinum. Sala á olíu og dagvöru mun á endanum renna 26. júní 2019 07:45