Ísland er nú komið á gráan lista með löndum eins og Afganistan, Írak og Úganda. Aðrar þjóðir sem bættust á gráa listann í dag eru Bahamaeyjar, Botswana, Kambódía, Ghana, Mongólía, Pakistan, Panama, Trínídad og Tóbakó, Jemen og Simbabve. Enn neðar, á svörtum lista, eru Norður-Kórea og Íran.
Aftur á móti hafa Eþíópía, Sri Lanka og Túnis brugðist við tilmælum FATF og eru komin af listanum.

Nýsamþykkt frumvörp dugðu ekki til
Í síðustu viku samþykkti Alþingi tvö frumvörp með hraði sem stjórnvöld sögðu nauðsynlegt að lögleiða til að koma í veg fyrir að samtök þjóða sem berjast gegn peningaþvætti setji Ísland á lista yfir þjóðir sem ekki hafi komið upp regluverki og ráðstöfunum til að koma í veg fyrir peningaþvætti, sem meðal annars væri nýtt til að styðja við hryðjuverkasamtök.Ráðherrar hafa líst því yfir að það yrði mikið áfall ef Ísland rataði á þennan lista. Fram hefur komið að íslensku viðskiptabankarnir hafa haft miklar áhyggjur af því að Ísland rataði á listann.
Lára Björg Björnsdóttir, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, vísaði á dómsmálaráðuneytið þegar leitað var til hennar um upplýsingar um málið. Hafliði Helgason, upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins, segist ekki geta tjáð sig um málið að svo stöddu.
„Hverjir trúa því að við eigum margt sameignlegt með þeim löndum sem eru á þessum lista. Hvað er hægt að lesa í það að þessi lönd taki þá ákvörðun að setja Ísland á lista með þeim ríkjum sem þar eru,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir iðnaðarráðherra á Alþingi í gær.

Vonar að veran verði aðeins til eins árs
„Fjármálaaðgerðarhópurinn birti skýrslu 2018 þar sem tiltekinn var 51 ágalli á umgjörð og framkvæmd í aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og úrbóta krafist. Frá þeim tíma hafa dómsmálaráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið, ásamt Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitinu, unnið að því að bregðast við athugasemdum FATF,“ sagði Áslaug Arna.Sérstakur stýrihópur hefði verið starfræktur til að halda utan um þá vinnu. Áslaug Jósepsdóttir lögmaður er formaður stýrihópsins sem skipaður var í febrúar í fyrra.
„Íslensk stjórnvöld hafa unnið ötullega að því að bæta varnir gegn peningaþvætti eins og sjá má af þeim umfangsmiklu úrbótum sem gerðar hafa verið frá því að fjármagnshöftum var aflétt og hafa öll helstu skilyrði FATF að mati íslenskra stjórnvalda verið uppfyllt.“
Verði því ekki séð að nokkurt málefnalegt tilefni sé til þess að breyta stöðu landsins eftir alla þá vinnu sem fram hefur farið hér á landi.
„Verði niðurstaðan eigi að síður sú að Ísland verði sett á fyrrnefndan lista, munu íslensk stjórnvöld kappkosta að það verði aðeins til skamms tíma, en FATF getur endurskoðað afstöðu sína á næsta ári. En einnig er búið að leggja vinnu í að meta áhrifin og vera tilbúin undir að við verðum sett á listann.“