Skoðun

Vonarglæta í vonleysinu

Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar
Útþensla ríkisvaldsins á undanförnum árum er áfellisdómur yfir þeim sem haldið hafa um stjórnartaumana. Ríkisútgjöldin aukast ár frá ári, reglugerðir margfaldast og eftirlitsstofnanir þenjast út. Á sama tíma hafa opinberir starfsmenn leitt launaþróun á vinnumarkaði. Þegar öllu er á botninn hvolft eru þetta helstu mælikvarðarnir á árangur þeirra stjórnmálamanna sem tala fyrir öflugu atvinnulífi. Þróunin á síðustu árum vekur óhjákvæmilega spurningar um hvort forysta flokksins sem talar hvað mest um markaðsfrelsi og minni ríkisafskipti hafi burði til að þess að glíma við stjórnkerfið.

Kerfið er hannað til þess að þenjast út vegna þess að það grundvallast á því að ávinningur dreifist á fáa en kostnaður á marga. Kostnaðurinn við fyrirhugaðar niðurgreiðslur á einkareknum fjölmiðlarekstri mun kannski nema um 1.500 krónum á hvern landsmann. Það tekur því varla að kynna sér áformin og hvað þá andæfa þeim. Ávinningurinn fyrir hvern fjölmiðil nemur hins vegar allt að 50 milljónum króna. Kemur því ekki á óvart að sumir fjölmiðlar hafi notað vettvanginn sem þeir hafa til að mála dökka mynd af stöðu íslenskrar fjölmiðlunar.

Þetta er aðeins eitt dæmi af mörgum. Þrýstingurinn kemur úr öllum áttum, bæði frá ríkisstofnunum og atvinnulífinu. Hönnunargalli kerfisins leiðir til þess að allir reyna að lifa á kostnað annarra. Því er stærsta pólitíska prófraun þeirra stjórnmálamanna, sem vilja stuðla að öflugu atvinnulífi, sú að spyrna á móti öllum þeim kröftum sem verka í áttina að auknum umsvifum ríkisins. Það er heljarinnar prófraun sem krefst staðfestu og leiðtogahæfni. Á síðustu árum hefur enginn staðist þessa prófraun sem er grafalvarlegt í ljósi þess að sífellt erfiðara verður að snúa þróuninni við.

En í vonleysinu er ein vonarglæta og hana má finna í Íslandspósti þar sem nýr forstjóri er í meiriháttar tiltekt. Þar hefur 12 prósentum starfsmanna verið sagt upp og óskyldur rekstur settur í sölu. Forstjórinn virðist starfa eftir allt öðrum lögmálum en hinir ríkisforstjórarnir og má ætla að hann hafi fengið skýr tilmæli frá ráðherra um að hagræða í rekstrinum. Líklega voru þau skýrari en tilmæli stjórnvalda um launakjör æðstu stjórnenda sem stjórnir ríkisfyrirtækja hafa hunsað. Hvort Íslandspóstur verði fordæmi eða einsdæmi á hins vegar eftir að koma í ljós.




Skoðun

Sjá meira


×