Leikarinn Peter Fonda er látinn Kristín Ólafsdóttir skrifar 16. ágúst 2019 23:31 Peter Fonda á viðburði í Hamborg í Þýskalandi í fyrra. VÍSIR/GETTY
Bandaríski leikarinn Peter Fonda er látinn 79 ára að aldri eftir baráttu við lungnakrabbamein. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjölskyldu hans. Fonda er þekktastur fyrir kvikmyndina Easy Rider sem frumsýnd var árið 1969. Fonda skrifaði handrit myndarinnar, framleiddi hana og lék eitt aðahlutverka, ásamt Dennis Hopper og Jack Nicholson. Myndin er talin einn af hápunktum hinnar svokölluðu „andmenningar“ (e. counterculture) sjöunda áratugsins í Bandaríkjunum. Fonda var tvisvar tilnefndur til Óskarsverðlauna, fyrst fyrir handritið að Easy Rider og síðar fyrir bestan leik í aðalhlutverki árið 1997 fyrir myndina Ulee's Gold. Fonda hlaut Golden Globe-verðlaunin fyrir leik sinn í myndinni. Fonda var úr mikilli leikarafjölskyldu. Faðir hans var hinn goðsagnakenndi Henry Fonda, systir hans er leikkonan Jane Fonda og dóttir hans er Bridget Fonda. Þá lætur hann eftir sig soninn Justin og eiginkonu, Margaret DeVogelaere.Hér að neðan má sjá stiklu úr kvikmyndinni Easy Rider.
Andlát Bandaríkin Bíó og sjónvarp Hollywood Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Fleiri fréttir Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Sjá meira