Íslandsmeistararnir sækja sér kana í KR Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júlí 2019 09:00 Kiana Johnson í leik á móti Val á síðustu leiktíð. Nú færir hún sig úr Vesturbænum yfir á Hlíðarenda. vísir/bára
Kiana Johnson hefur gert samning við Íslandsmeistara Vals um að spila með liðinu í Domino´s deild kvenna í körfubolta á næsta tímabili. Kiana þekkir vel til íslenska boltans því hún spilaði með KR-liðinu á síðustu leiktíð og var þá með með 23,2 stig, 10,4 fráköst, 7,3 stoðsendingar og 3,4 stolna bolta að meðaltali í leik. KR-ingar ákváðu hins vegar að semja við Danielle Victoriu Rodriguez sem hefur spilað með Stjörnunni undanfarin ár. Kiana Johnson er 25 ára leikstjórnandi sem er að fara að spila sitt fjórða tímabil sem atvinnumaður í Evrópu. Hún spilaði fyrst tvö ár í finnsku deildinni áður en hún færði sig yfir til Íslands. Kiana Johnson átti í fyrra einn rosalegasta leik í sögu kvennakörfunnar á Íslandi þegar hún var með 50 stig, 16 fráköst og 10 stoðsendingar í sigri á Breiðabliki í Smáranum. Valsliðið tapaði aðeins tveimur leikjum í fyrra eftir að liðið fékk Helenu Sverrisdóttir til sín og þeir voru báðir á móti KR-liðinu með Kiönu Johnson innanborðs „Við erum full tilhlökkunar við að bæta Kiönu í hópinn. Hún er leikmaður sem við þekkjum vel eftir að hafa leikið 9 leiki við KR liðið á síðustu leiktíð þar sem hún gerði okkur lifið leitt. Kiana mun leika lykilhlutverk á báðum endum vallarins og vonandi hjálpa okkur í áttina að frekari velgengni,“ sagði Darri Freyr Atlason í fréttatilkynningu frá Val. Þar var einnig stutt viðtal við Kiönu sjálfa. „Ég þekki liðið og stelpurnar nokkuð vel enda spilaði ég við þær mörgum sinnum á síðasta tímabili. Eins og hópurinn lítur út og þær stelpur sem hafa bæst við er ég sannfærð um að við getum náð góðum árangri í vetur,“ sagði Kiana Johnson.
Dominos-deild karla Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira