Sonur Hålands skoraði níu mörk í einum og sama leiknum á HM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. maí 2019 18:09 Níu marka maðurinn, Erling Braut Håland. vísir/getty
Erling Braut Håland skoraði hvorki fleiri né færri en níu mörk þegar Noregur vann stórsigur á Hondúras, 12-0, á HM U-20 ára í Póllandi í dag. Erling þessi er sonur Alf Inge Håland, fyrrverandi leikmanns Leeds United og Manchester City, sem var hvað þekktastur fyrir viðskipti sín við Roy Keane, fyrirliða Manchester United. Strákurinn, sem er 18 ára, þykir gríðarlega mikið efni en Red Bull Salzburg keypti hann frá Molde í fyrra. Håland fór hamförum gegn Hondúras í dag og skoraði níu af tólf mörkum Noregs. Hann skoraði fjögur mörk í fyrri hálfleik og bætti fimm við í seinni hálfleik. Ótrúleg frammistaða hjá stráknum. Håland sló þar með met Brasilíumannsins Adaíltons sem skoraði sex mörk í sigri á Brassa á Suður-Kóreumönnum, 10-3, á HM 1997. Sigur Noregs á Hondúras er stærsti sigur liðs í sögu HM U-20 ára. Brasilía átti metið en Adaílton og félagar unnu Belgíu, 10-0, á HM fyrir 22 árum.Two new #U20WC records set: Most goals scored in a match: Erling Haland (9) Biggest win — FIFA.com (@FIFAcom) May 30, 2019 Með sigrinum í dag fékk Noregur sín fyrstu stig á HM. Norðmenn enduðu í 3. sæti C-riðils en eiga enn möguleika á að komast í 16-liða úrslit.
Fótbolti Noregur Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Fótbolti Fleiri fréttir Mourinho tekur upp hanskann fyrir Mbappe „Ef ég myndi segja allar þá myndi fólk halda að ég væri klikkuð“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Ungu strákarnir okkar slást við Grikki um sæti á EM Í tveggja leikja bann fyrir að kippa í hárið Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Sjá meira