Forstjóri Sláturfélags Suðurlands hafnar alfarið málflutningi Félags atvinnurekenda um að það felist tvískinnungur í að flytja inn kjöt og vara við innflutningi. Líkt og greint var frá í gær gagnrýndi Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekanda, málflutning „Hóps um örugg matvæli“. Benti hann á þá staðreynd að nokkrir af aðstandendum auglýsingaherferðarinnar væru einnig stórtækir kjötinnflytjendur. „Tvískinnungur af þessu tagi er alls ekki trúverðugur,“ sagði Ólafur.
Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, segir Ólaf draga ranga ályktun. „Fullyrða má að það sé hagur afurðastöðva og innlends landbúnaðar að Ísland sé sjálfu sér nægt og ekki sé flutt inn kjöt. En svona er staðan ekki. Ísland hefur gert tollasamninga við Evrópusambandið sem leyfir verulegan innflutning á kjöti. Þetta kjöt verður flutt inn hvort sem mönnum líkar betur eða verr,“ segir Steinþór.
„Innflutt kjöt er ekki allt eins. Það er mikill munur á lyfjanotkun og aðstæðum til kjötframleiðslu innan Evrópusambandsins en tollasamningur Íslands við ESB gerir engan greinarmun á því hvaðan kjötið kemur.“
Hann segir þær afurðastöðvar sem hann þekki til stunda ábyrgan innflutning og velja að flytja inn kjöt frá löndum þar sem lyfjanotkun er í lágmarki og því heilnæmara kjöt en hægt væri að kaupa annars staðar innan ESB á lægra verði.
Mikilvægt sé að innlend stjórnvöld móti stefnu og geri kröfur um hámark lyfjanotkunar gagnvart erlendum aðilum sem hingað vilja flytja kjöt í ljósi þess að sýklalyfjaónæmar bakteríur séu ein helsta heilsufarsógn mannkyns. „Eftir því sem fólk neytir meira af kjöti eða annarri matvöru sem inniheldur sýklalyfjaónæmar bakteríur, þeim mun líklegra er að viðkomandi þrói með sér slíkt ónæmi. Það er því ástæða til að hafa áhyggjur af auknum innflutningi kjöts.“
Hafnar ásökunum um tvískinnung vegna innflutnings á kjöti
Ari Brynjólfsson skrifar

Mest lesið

Þriggja ára fangelsi og tveggja milljarða sekt
Viðskipti innlent

Stofnandinn búinn að eignast Mandi á ný
Viðskipti innlent

Matvælastofnun gerir ekki athugsemdir við kjötvinnslu í Álfabakka
Viðskipti innlent

Að tilkynna vinnufélaga til lögreglu
Atvinnulíf

Icelandair skrúfar fyrir fría gosið
Viðskipti innlent

Kínverjar svara fyrir sig og hækka enn tolla á bandarískar vörur
Viðskipti erlent

Íslandshótel taka að óbreyttu yfir rekstur Nordica og Natura
Viðskipti innlent



Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira
Viðskipti innlent