Israel Martin tekur við Haukaliðinu af Ívari Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. maí 2019 14:45 Israel Martin fagnar bikarmeistaratitlinum í Laugardalshöllinni árið 2018. Vísir/Hanna
Spánverjinn Israel Martin verður næsti þjálfari meistaraflokks Hauka í Domino´s deild karla í körfubolta en Körfuknattleiksdeild Hauka og Israel Martin hafa komist að samkomulagi að Israel þjálfi Hafnarfjarðarliðið næstu þrjú árin. Haukarnir segja frá þjálfarráðningu sinni á heimasíðu félagsins í dag. Israel Martin tekur liðinu af Ívari Ásgrímssyni sem hefur stýrt Haukaliðinu frá tímabilinu 2012 til 2013 þegar liðið vann sér aftur sæti í efstu deild. Israel Martin þekkir vel til Domino´s deildarinnar enda hefur hann þjálfað lið Tindastóls undanfarin tímabil. Hann kom Stólunum tvisvar í lokaúrslitin og gerði liðið að bikarmeisturum 2018. Stefán Þór Borgþórsson verður nýr framkvæmdastjóri Körfuknattleiksdeildar Hauka og mun sinna daglegum rekstri deildarinnar. Stefán þekkir umhverfið á Ásvöllum vel enda uppalinn Haukamaður. Hann hefur bæði spilað og þjálfað hjá félaginu og sat í stjórn kkd. Hauka frá 2002 þar til hann hóf að starfa hjá Körfuknattleikssambandinu árið 2008. Vilhjálmur Steinarsson verður áfram í þjálfarateymi Hauka og mun fyrst og fremst sjá um styrktarþjálfun liðsins. Vilhjálmur er einn fremsti styrktarþjálfari landsins þegar kemur að körfuknattleik og hefur gert frábæra hluti með Haukaliðið. Þá er Vilhjálmur einnig í styrktarþjálfarateymi A landsliðs karla fyrir komandi verkefni hjá þeim.
Dominos-deild karla Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira