Skaut táning sem var að leika sér með loftbyssur með vinum sínum Samúel Karl Ólason skrifar 7. maí 2019 22:00 Lögreglunni hafði borist tilkynning um að fjórir unglingar hefðu brotist inn í hús og minnst tveir þeirra hefðu verið vopnaðir. Innhringjandinn tók fram í tilkynningu sinni að hann væri ekki viss um að byssurnar væru alvöru byssur.
Fjölskylda fjórtán ára drengs sem skotinn var af lögregluþjóni í Oklahoma í mars, undirbýr nú lögsókn gegn lögreglunni vegna árásarinnar. Lögsóknin byggir á myndbandi úr vestismyndavél lögregluþjóna sem kallaðir voru til vegna unglinga sem voru að leika sér með loftbyssur í yfirgefnu húsi. Eftir að skotárásin átti sér stað er lögregluþjónninn sem skaut Lorenzo Clerkley yngri tvisvar sinnum mættur aftur til starfa og saksóknarar ákváðu að ákæra hann ekki vegna árásarinnar. Myndband af atvikinu, sem Washington Post fékk frá lögmanni fjölskyldu Clerkley, sýnir að lögregluþjónninn, sem heitir Kyle Holcomb, stóð í felum þegar hann skaut á Clerkley og það nánast án viðvörunar. Það sem meira er þá heyrist Holcomb segja við samstarfsfélaga sinn, þegar þeir nálgast húsið og heyra hvelli, að líklega sé um leikfangabyssur að ræða. Lögreglunni hafði borist tilkynning um að fjórir unglingar hefðu brotist inn í hús og minnst tveir þeirra hefðu verið vopnaðir. Innhringjandinn tók fram í tilkynningu sinni að hann væri ekki viss um að byssurnar væru raunverulegar. Holcomb stillti sér upp við girðingu sem gat var á og þar sá hann Clerkley koma út um glugga. Hann kallaði: „Sýndu mér hendurnar! Slepptu henni! og skaut fjórum skotum nánast samstundis. Eftir það kallaði hann aftur: „Slepptu byssunni“. Clerkley segist ekki hafa haldið á byssu en lögreglan segir loftbyssu hafa fundist í bakgarðinum þar sem hann var skotinn. Hann segir að hann og vinir hans hafi verið að leika sér með loftbyssur í húsinu, hann hafi hins vegar ekki verið með loftbyssu á sér og hafi verið að klifra út um glugga á húsinu, þar sem útidyrahurðin var læst, og hafi þá verið skotinn. Myndbandið sýnir Clerkley ekki þegar hann var skotinn og þegar atvikið átti sér stað fjölluðu héraðsmiðlar um það eins og það hafi verið staðreynd að Clerkley hafi verið vopnaður. Hann segist ekki hafa áttað sig á því að hann hafi verið skotinn strax. Eftir það var hann handjárnaður og dregin yfir glerbrot. Holcomb skoðaði annað sár hans og sagði þetta vera allt í lagi. „Þú ert ekki að fara að deyja.“Vert er að vara lesendur við því að myndbandið gæti vakið óhug.Maki Haberfeld, prófessor og sérfræðingur í löggæslumálum, sagði WP að ekki væri um réttmæta skotárás að ræða. Jafnvel þó Clerkley hafi verið með loftbyssu hafi Holcomb ekki gefið honum tíma til að verða við skipunum hans um að leggja byssuna frá sér. „Þegar ég horfi á þetta get ég ekki séð hvernig lögregluþjónninn komst að þeirri niðurstöðu að líf hans eða líf annarra væri í bráðri hættu,“ sagði Haberfeld. „Hann skipar táningnum að leggja frá sér byssuna en skýtur um leið.“ Hún sagði einnig óeðlilegt að Clerkley hafi verið handjárnaður og lögregluþjónarnir hafi einfaldlega beðið eftir sjúkraflutningamönnum, sem voru ekki komnir á vettvang þegar myndbandið endaði eftir rúmar tíu mínútur. Lögmaður Holcomb vildi ekki tjá sig að öðru leyti um málið en með því að segja að lögreglan og héraðssaksóknarar hefðu hreinsað hann af sök. Meðal annars á grunni myndbanda af vettvangi. John George, framkvæmdastjóri verkalýðsfélags lögregluþjóna á svæðinu, sagði atvikið sorglegt en taldi þó að Holcomb hefði ekki brotið af sér. „Ég held að lögregluþjónninn hafi ekki haft meiri tíma. Þetta er óheppilegt atvik. Hann er táningur og var ekki með alvöru byssu, en lögregluþjónninn vissi það ekki á þessum tíma,“ sagði George.Ákærður fyrir innbrot Clerkley var ákærður fyrir innbrot, missti af þrjár vikur úr skóla og fjölskylda hans stendur frammi fyrir miklum kostnaði vegna sára hans. Þar á meðal er um 160 þúsund króna reikningur vegna sjúkraflutningsins af vettvangi og á sjúkrahús. Fjölskylda hans vonast til þess að fá skaðabætur til að geta greitt þann kostnað og að mál Clerkley muni koma í veg fyrir að fleiri verði skotnir með þessum hætti. Blaðamenn Washington Post benda á að aðrir lögregluþjónar í Oklahomaborg hafi orðið fyrir gagnrýni á undanförnum árum. Árið 2017 skaut lögregluþjónn heyrnarlausan mann til bana því hann hlýddi ekki skipunum hans um að leggja frá sér járnrör. Nágrannar mannsins höfðu sagt lögregluþjóninum að maðurinn væri heyrnarlaus. Saksóknarar komust að þeirri niðurstöðu að um sjálfsvörn væri að ræða. Annar lögregluþjónn var ákærður fyrir manndráp seinna árið 2017 þegar hann skaut mann til bana sem hafði hótað því að svipta sig lífi. Hann var með brúsa af kveikjarabensíni í annarri hendi og kveikjara í hinni þegar hann var skotinn.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Innlent Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent „Þetta hefur verið þungur tími“ Innlent Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Innlent Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Erlent Gaf fingurinn á Miklubraut Innlent Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Erlent Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir á aðfangadag Veður Fleiri fréttir Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Réðust á skip úr skuggaflotanum þúsundir kílómetra frá Úkraínu Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Sjá meira
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent