Handtekinn eftir vopnað rán í Firði Birgir Olgeirsson skrifar 12. apríl 2019 12:20 Maðurinn hótaði afgreiðslukonu með hnífi. FBL/Stefán
Lögreglan handtók í dag rétt rúmlega þrítugan íslenskan karlmann sem hafði framið vopnað rán í apóteki í verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði í morgun. Maðurinn gekk þar inn á ellefta tímanum í morgun og hótaði afgreiðslukonu með hnífi ef hún færi ekki að kröfum hans. Lögreglu barst tilkynning um málið klukkan 10:56 en þegar hún kom á vettvangi hafði maðurinn náð að ganga smá spöl frá verslunarmiðstöðinni áður en hann var handtekinn. Sævar Guðmundsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar í Hafnarfirði, segir manninn ekki hafa sýnt af sér mótþróa þegar hann var handtekinn. Spurður hvað maðurinn hafði upp úr ráninu svarar Sævar að það sé óljóst á þessari stundu og því ekki vitað hversu miklum fjármunum eða lyfjum hann náði. Verður maðurinn vistaður í fangageymslu í dag og svo ákvörðun tekin hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir honum. Þrír starfsmenn voru inni í apótekinu þegar maðurinn lét til skara skríða en Sævar segir engan hafa slasast. Starfsfólkið var hins vegar skelkað og í áfalli, sér í lagi konan sem maðurinn hótaði.
Hafnarfjörður Lögreglumál Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Fleiri fréttir Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Sjá meira