Ítrekað gefið tækifæri til að láta af dólgslátum en lét sér ekki segjast Kristín Ólafsdóttir skrifar 2. apríl 2019 06:45 Maðurinn hafði uppi dólgslætin á hóteli í miðbænum í gærkvöldi. Vísir/vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var á tíunda tímanum í gærkvöldi kölluð út vegna ölvaðs manns sem „var til trafala“ á hóteli í miðbænum, að því er segir í dagbók lögreglu. Lögregla gaf manninum ítrekað tækifæri til að láta af dólgslátunum og koma sér í burtu en hann lét sér ekki segjast. Maðurinn var að endingu vistaður í fangageymslu. Um klukkan tíu var lögregla kölluð á vettvang heimilisofbeldis í austurborginni. Þar var ætlaður gerandi handtekinn í þágu rannsóknar málsins auk þess sem lögregla kallaði til Barnarverndarnefnd og starfsmann félagsþjónustu, þolanda og börnum til halds og trausts. Rétt fyrir klukkan ellefu réðst svo ölvaður maður á starfsmann vínveitingahúss í Hafnarfirði. Maðurinn hafði verið gestur staðarins og brást ókvæða við afskiptum starfsmannsins. Lögregla handtók manninn á vettvangi og var í kjölfarið ákveðið að hann skyldi vistaður í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins. Hann verður yfirheyrður með morgninum, að því er segir í dagbók lögreglu. Stuttu fyrir miðnætti var tilkynnt um að bifreið hefði verið ekið á ljósastaur í Norðlingaholti. Engin slys urðu á fólki. Laust upp úr miðnætti féll svo ungur maður yfirlið á veitingastað í miðborginni. Lögregla fór ásamt sjúkraflutningamönnum á vettvang manninum til aðstoðar.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Fleiri fréttir Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Sjá meira