Karabatic hættir með landsliðinu á næsta ári Henry Birgir Gunnarsson skrifar 4. apríl 2019 19:00 Karabatic hefur átt ótrúlegan feril með franska landsliðinu. vísir/getty
Einn besti handknattleiksmaður sögunnar, Frakkinn Nikola Karabatic, hefur ákveðið að hengja upp landsliðsskóna eftir ÓL í Tókýó á næsta ári. Karabatic hefur spilað yfir 300 landsleiki fyrir Frakka og skorað yfir 1.100 mörk fyrir landsliðið ásamt því að vinna allt sem hægt er að vinna með landsliðinu. Hann á tvö ÓL-gull og fjórum sinnum hefur hann orðið heimsmeistari með Frökkum. Í heildina hefur hann unnið til fjórtán verðlauna með franska liðinu. „Það væri frábært að enda á góðum nótum í Tókýó. Árið 2020 er líka með allt of mörgum leikjum og ég hef á ferlinum barist hart fyrir mín félög og landsliðið,“ sagði Karabatic. „Ég verð 36 ára á næsta ári og kominn tími til að huga að heilsunni því ég vil geta spilað handbolta við börnin mín eftir að ég hætti.“ Frakkinn er einmitt í farabroddi í herferð leikmanna sem vilja minnka álagið á leikmennina. Á næsta ári verða tvö stórmót ásamt því að spilað er langt inn í sumarið. Það verður lítil sem engin hvíld fyrir þá bestu á næsta ári.
Handbolti Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira