Kröpp lægð á leið til landsins Sylvía Hall skrifar 10. mars 2019 09:42 Full ástæða er til að fylgjast með veðurspám og viðvörunum á næstu dögum. Vísir/Vilhelm
Útlit er fyrir austlæga átt og éljagang á austanverðu landinu í dag en hæglætis veður í öðrum landshlutum. Vikan hefst þó á talsverðum umhleypingum en spár gera ráð fyrir að kröpp lægð myndist við Nýfundnaland fyrir hádegi í dag og dýpki hratt á leið sinni til Íslands. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings. Á morgun hvessir af austri og gera verstu spár ráð fyrir meðalvindhraða yfir 30 m/s á stöku stað við suðurströndina seint annað kvöld. Mestar líkur eru þó á því að hæsti meðalvindhraði verði 25 til 28 m/s annað kvöld. Full ástæða er til að fylgjast vel með veðurspám og viðvörunum en nú þegar hafa gular eða appelsínugular viðvaranir verið gefnar út vegna veðursins næstu daga á Suður-, Suðausturlandi og Miðhálendi.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ þriðjudag:Norðaustan 15-23 m/s. Rigning suðaustantil, él norðanlands, en þurrt suðvestantil. Dregur smám saman úr vindi og úrkomu þegar líður á daginn. Hiti 1 til 6 stig sunnantil, en annars kringum frostmark.Á miðvikudag:Hægt vaxandi SA átt, 8-15 m/s um kvöldið. Úrkomulítið, en rigning eða slydda um sunnanvert landið síðdegis. Hiti um og undir frostmarki en hiti 0 til 4 stig sunnan- og vestanlands.Á fimmtudag:Allhvöss eða hvöss austlæg átt með slyddu eða rigningu, en úrkomulítið á norðurlandi. Heldur hlýnandi veður.Á föstudag:Útlit fyrir allhvassa norðaustanátt með snjókomu eða éljum. Heldur hægari og úrkomulítið suðvestantil. Hiti kringum frostmark.Á laugardag:Líkur á norðaustanátt með éljum og heldur kólnandi veðri.
Veður Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Fleiri fréttir Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Bjarni fundaði með Guterres Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Verður Þórsmörk þjóðgarður? Vill burt með rándýr, úrelt og óþarfa stimpilgjöld Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Fjármögnun NPA-samninga og Bakgarðshlaupið í beinni Samgöngusáttmálinn, Yazan og loftlagsmál á Sprengisandi Slegist með vopnum við skemmtistað Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Lögreglumenn í veikindaleyfi vegna þungra mála Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Mikill reykur eftir að gleymdist að slökkva á kerti Bið eftir NPA-þjónustu og eftirspurn eftir sæðisgjöfum Arnar Þór á leið í nýjan flokk Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Lífræni dagurinn er í dag Bein útsending: Heilabilun rædd á Alzheimerdegi Ekkert bendi til að sakborningum muni fjölga Telur fleiri falla á nýju bílprófi Maður margra storma íhugar stöðu sína Byssan reyndist leikfang Sjá meira