Ekkert kemur í staðinn fyrir mjólk Benedikt Bóas skrifar 1. mars 2019 11:15 1. mars 1989, Bjórdagurinn, opnun áfengisverslana, bjórbanni aflétt sem varað hafði síðan 1915. Fólk hamstrar bjór. Fólk bíður í biðröðum eftir afgreiðslu. bjórdagurinn 1989
Í dag er bjórdagurinn en þá er því fagnað að bjórinn var leyfður. Þegar Ísland tók skrefið út úr torfkofunum og steig inn í nútímann. Enn stendur styr um áfengið og ekki er enn leyfilegt að auglýsa áfengi þó að allt sé morandi í áfengisauglýsingum á samfélagsmiðlum og í erlendum tímaritum. Fyrsta daginn fengust fimm bjórtegundir í Vínbúðum, Egils Gull frá Ölgerðinni, Löwenbräu, Sanitas Pilsner og Sanitas Lageröl frá Sanitas og Budweiser frá Bandaríkjunum, en fljótlega bættust við innfluttu tegundirnar Kaiser Premium frá Austurríki og Tuborg frá Danmörku og seinna Pripps frá Svíþjóð. Í Morgunblaðinu 2. mars sagði að 340.000 dósir af bjór hafi verið seldar þennan fyrsta dag, megnið af því á höfuðborgarsvæðinu. Budweiser seldist upp en mjög lítið magn af honum kom til landsins eða aðeins einn gámur. Löwenbräu og Egils Gull voru vinsælustu tegundirnar þennan fyrsta dag samkvæmt fréttinni.1. mars 1989, Bjórdagurinn, opnun áfengisverslana, bjórbanni aflétt sem varað hafði síðan 1915. Fólk hamstrar bjór. Tveir menn vel sáttir með bjórinn sinn. bjórdagurinn 1989Mest seldist af bjór í Kringlunni og sagði verslunarstjóri búðarinnar að örtröð hefði verið fyrir utan þegar lásinn var tekin af hurðinni og umferð hefði verið jöfn út daginn. Kaiser var aðeins til á flöskum og því eingöngu seldur á veitingahúsum og Tuborg kom ekki í verslunina á Stuðlahálsi fyrr en síðdegis. Á Akureyri seldust tæplega 40 þúsund dósir af Sanitas-bjórtegundunum þremur og um 6.000 dósir af Egils Gulli. Verslunarstjórinn þar á bæ sagði í sömu grein að starfsmenn hefðu vart undan að flytja bjór frá Sanitas í hillur ÁTVR. Að Ísland skyldi taka þetta skref þótti fréttnæmt um allan heim. Voru hér margir fréttamenn, meðal annars frá ABC og NBC. Voru bandarískir fréttamenn enn í sárum yfir að hafa þurft að fylgja eftir leiðtogafundinum 1986 og þurft að drekka bjórlíki. RÚV sendi pakka til allra ríkisstöðva Evrópu klukkan 16 og þýska stöðin ARD sendi 10 mínútna pakka heim til Þýskalands. Í fréttum næstu daga á eftir að bjórinn hafði verið leyfður kom í ljós að gervihnattarsamband RÚV var þéttskipað þessa fyrstu daga.Það var gríðarlega mikið að gera um allt land þegar dyr ÁTVR opnuðust í fyrsta sinn með bjór til sölu. Fréttablaðið/GVAÁTVR leyfði auglýsingar á pokunum hjá sér og þennan fyrsta dag stóð á þeim: Ekkert kemur í staðinn fyrir mjólkina. Voru 600 þúsund pokar prentaðir með þessari áletrun. Mjólkurdagsnefnd tók fyrsta auglýsingaplássið. Fyrir það fékk Landvernd 300 þúsund krónur. Vonaðist ÁTVR til að færa Landvernd eina milljón á ári. Árið 2017 seldust um 1,5 milljónir plastpoka og dróst salan saman á milli ára. Um 32 prósent keyptu poka þetta árið. Fljótlega eftir að bjórinn var leyfður varð bjór vinsælasti áfengi drykkur landsins, einkum lagerbjór, en á síðustu árum hafa vinsældir annarra gerða bjórs aukist talsvert með tilkomu nýrra innlendra tegunda og stíla. Á árinu 2017 seldust rúmlega 22 milljónir lítra í ríkinu og jókst salan um tæp 5 prósent milli ára. Enginn má selja áfengi nema ÁTVR en í árslok 2017 rak ÁTVR 51 Vínbúð auk vefbúðar, þar af eru 14 á höfuðborgarsvæðinu. Vínbúðin á Flúðum var stækkuð og endurbætt, Vínbúðin í Vík var opnuð á ný eftir gagngerar breytingar og stækkun. Vínbúðin á Höfn fékk stærra húsnæði og var endurbætt, og í nóvember var opnuð ný og glæsileg Vínbúð í Garðabæ en ekki hefur verið Vínbúð í bæjarfélaginu frá því í janúar 2011. Það þarf því ekki að keyra lengi til að komast í bjórverslun.2. mars 1989, bjór skipað út. bjórdagurinn 1989Í ársskýrslu ÁTVR fyrir árið 2017 kemur fram að alls seldust 21,9 milljónir lítra af áfengi. Sala ársins var 4,8% meiri í lítrum en á fyrra ári. Sala á bjór jókst um 4,8%. Tekjur af sölu áfengis voru tæpir 25 milljarðar. Um 67 prósent af því sem seldist var innlend framleiðsla. Hlutfallið var 76 prósent fyrir áratug. Á árinu 2017 komu rúmlega 4,9 milljónir viðskiptavina í Vínbúðirnar. Flestir koma í lok vikunnar en að jafnaði koma um 28 þús. viðskiptavinir á hefðbundnum föstudegi. Á stærstu dögum ársins voru heimsóknirnar tæplega 40 þús. Var laugardagurinn 30. desember stærsti dagur ársins 2017 hvað varðar fjölda viðskiptavina. Flestir kaupa sinn bjór á Dalvegi, Skeifan fær silfrið og Heiðrún bronsið. Af 500 ml dós fara 46 prósent í skatt en ÁTVR leggur 14 prósent á ölið.
Áfengi og tóbak Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Lífið Hvað er Labubu og hvers vegna eru allir að missa sig yfir því? Tíska og hönnun Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Lífið Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Lífið Gamli er (ekki) alveg með'etta Gagnrýni Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Lífið Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Tónlist Hjarðhegðun Íslendinga Lífið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið Fleiri fréttir „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Bieber gefur út óvænta plötu Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Sjá meira