Farice að fullu í eigu ríkisins Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 1. mars 2019 14:40 Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka undirrituðu samninginn í dag. fjármálaráðuneytið
Íslenska ríkið skrifaði í dag undir samning við Arion banka um kaup á um 38 prósent hlut bankans í félaginu Farice ehf. Eftir kaupin er félagið að fullu í eigu ríkisins þar sem ríkissjóður á um 65 prósent hlutafjár Farice en Landsvirkjun 33 prósent. Í tilkynningu fjármálaráðuneytisins vegna kaupanna segir að íslenska ríkið hafi skilgreint fjarskiptasambönd til útlanda sem innviði. Eru kaupin gerð í ljósi þess. „Arion banki varð hluthafi í Farice árið 2010 í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar en þar sem starfsemi Farice er ekki hluti af kjarnastarfsemi bankans, hefur hluturinn verið til sölu síðan þá,“ segir í tilkynningu. Farice var stofnað árið 2002 af íslenska ríkinu og íslenskum og færeyskum fjarskiptafyrirtækjum. Tilgangur fyrirtækisins var að leggja sæstrenginn FARICE-1 sem tekinn var í notkun í janúar árið 2004. „Fimm árum síðar lagði fyrirtækið jafnframt DANICE sæstrenginn til Danmerkur. Farice er langstærsti aðilinn í sölu á samböndum milli Íslands og útlanda. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru fjarskiptafyrirtæki hvers konar og stærri viðskiptavinir gagnavera,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Tækni Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Sjá meira