Huawei kynnti símann með mikilli viðhöfn í Barcelona í gær í skugga ásakana um brot á hugverkaréttindum og efasemda um öryggi 5G-kerfis kínverska risans.
Sjá einnig: Fokdýr brautryðjandi
Huawei var þannig óhrætt við að bera Mate X saman við Samsung Fold á kynningunni og benti til að mynda á að skjárinn á síma sínum sé 8 tommur, samaborið við 7,3 tommur á síma Samsung. Þar að auki sé Mate X 11 millímetrar að þykkt, en Fold er 17 millímetrar. Í því samhengi benti Huawei á það að Mate X virðist leggjast betur saman en Samsung Fold, eins og sjá má myndinni hér að neðan.
If this is an accurate representation of the competition, it underlines just what a great job Huawei has done with its industrial design on its #Foldable. #MWC19pic.twitter.com/JFpLYK49AEKínverski risinn leyfði blaðamönnum að skoða nýja símann eftir að kynningunni lauk í gær. Það hefur Samsung hins vegar ekki gert ennþá. Blaðamaður BBC sem grandskoðaði símann sagði að þegar aðal- og aukaskjárinn á Mate X eru lagðir saman virðast samskeytin sjást. Það verði óneitanlega að teljast galli. Sem fyrr segir er þó ekki vitað með fullri vissu hvort Samsung hafi náð að sníða þann galla af Fold.
— Ben Wood (@benwood) February 24, 2019
Aðalskjárinn á Mate X er 6,8 tommur að stærð og sá minni er 6,6 tommur. Þeir eru því báðir stærri en skjárinn á iPhone XS Max. Ólíkt Fold þá Mate X snýr engin myndavél að notandanum þegar síminn hefur verið opnaður, sem gerir allar sjálfsmyndatökur flóknari. Aftur á móti er búnaður í símanum sem leyfir notandanum að „sjá hvernig hann lítur út áður en hann tekur myndina,“ eins og það er orðað á vef CNET.
Interesting choice to have the cameras to the side of the #MateX so the screen has no notch or hole. I wonder if there are limitations because of that #Huawei#MWC2019pic.twitter.com/Ufs9fB01BmHuawei segir að nýi síminn sé hannaður fyrir 5G-fjarskiptatæknina. Hún muni gera notendum kleift að hala niður kvikmynd sem er eitt gígabæt að stærð á aðeins þremur sekúndum - þ.e.a.s. ef svo öflug nettenging er til staðar. Ætla má að hægt væri að koma 512 slíkum kvikmyndum fyrir á símanum, en auk þess er hann með 8GB RAM.
— Carolina Milanesi (@caro_milanesi) February 24, 2019
Eins og Samsung Fold er Mate X með tvöfalda rafhlöðu, en fyrirtækið segist þó geta lofað því að það taki ekki langan tíma að hlaða hana aftur. Ekki á að taka nema 30 mínútur að ná 85 prósent hleðslu. Þá getur síminn jafnframt hlaðið aukahluti þráðlaust.
Rétt eins og Samsung Fold er Mate X í dýrari kantinum. Hann mun kosta frá 2600 dölum, næstum 310 þúsund íslenskum krónum. Ódýrasta útgáfa Samsung Fold kostar tæplega 2000 dali. Huawei segist meðvitað um að verðið kunni að þykja hátt en að vonir standi til að það muni lækka innan tíðar.
Nánar má fræðast um Mate X hér.