Viðskiptavinur Arctic Trucks sem lenti í svikamyllu fékk helmingsafslátt í sárabætur Sighvatur Jónsson skrifar 7. febrúar 2019 12:11 Breyttur Hyuindai Santa Fe á Suðurskautslandinu.
Tölvupósti er ekki treystandi, segir framkvæmdastjóri Arctic Trucks, eftir að svindlarar komust yfir nærri 40 milljóna króna greiðslu viðskiptavinar fyrirtækisins vegna ferðar á Suðurpólinn. Tjónið er alfarið viðskiptavinarins en til að koma til móts við hann veitti Arctic Trucks helmingsafslátt á ferðinni þegar hún var greidd aftur.Morgunblaðið greindi frá því í morgun að svikahrappar hafi stolið nærri 40 milljónum króna af viðskiptavini Arctic Trucks. Hann var blekktur til að greiða upphæðina inn á reikning svikaranna í stað reikning Arctic Truck vegna ferðar tveggja einstaklinga á suðurpólinn. Arctic Trucks er þekkt fyrir breytingar á jeppum en það selur einnig ökuferðir yfir suðurpólinn með ökutækjum fyrirtækisins. Herjólfur Guðbjartsson, framkvæmdastjóri Arctic Trucks, segir að tveir einstaklingar hafi ætlað að fara yfir Suðurpólinn og til baka á tíu dögum. Tölvuþrjótarnir komust inn í tölvupóstsamskipti og villtu um fyrir viðskiptavininum. Eftir atvikið hefur verið tekin upp svokölluð tvíþætt auðkenning þegar starfsmenn skrá sig inn í tölvupóstkerfi Arctic Trucks. Starfsmenn nota lykilorð og leyninúmer sem er sent sem smáskilaboð í síma þeirra. Þá hafa verið gerðar breytingar á ferlum varðandi erlendar greiðslur. „Nú sendum við aldrei greiðsluupplýsingar í tölvupósti, notumst við bæði SMS og símtöl þegar móttaka greiðsla á sér stað frá erlendum aðila,“ segir Herjólfur. Hann segir að tölvupósti sé ekki treystandi. Fyrirtækið sé ekki bótaskylt, tjónið sé alfarið viðskiptavinarins. „Þetta er afskaplega leiðinlegt mál. Í þessu tilfelli komum við til móts við viðskiptavininni með 50% afslætti til að lágmarka tjónið.“ Herjólfur Guðbjartsson, framkvæmdastjóri Arctic Trucks, segir að ökuferðin yfir Suðurpólinn hafi verið farin í janúar en upp komst um svikin um mánaðamótin nóvember-desember á síðasta ári.
Ferðamennska á Íslandi Neytendur Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira