Enski boltinn

Arnór spilaði í jafntefli Bergischer

Dagur Lárusson skrifar
vísir/DHB
Arnór Þór Gunnarsson var í eldlínunni fyrir Bergischer gegn Lemgo í þýska handboltanum í dag þar sem hann skoraði tvö mörk.

 

Það voru Arnór og félagar sem byrjuðu leikinn betur og voru með forystuna fyrstu mínúturnar en þegar líða fór á hálfleikinn þá náði Lemgo forystunni og var staðan 10-9 í hálfleik fyrir Lemgo.

 

Í seinni hálfleiknum var mikil spennan því liðin héldu áfram að skiptast á að vera með forystuna og því var það vel við hæfi að lokastaðan í leiknum var jafntefli 22-22.

 

Arnór Þór Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Bergischer.

 

 

Úrslit dagsins:

 

Hannover-Burgdorf 29-30 Goppingen

HSG Wetzlar 23-22 Leipzig

Lemgo 22-22 Bergischer

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×