Leigubílstjóri kveikti í sér til að mótmæla deilibílaþjónustu Samúel Karl Ólason skrifar 10. desember 2018 15:04 Leigubílstjórar fara fram á að ríkisstjórn Suður-Kóreu neiti Kakao um starfsleyfi. Yonhap
Leigubílstjóri í Seoul í Suður-Kóreu kveikti í sér í bíl sínum í nótt. Það gerði hann til að mótmæla opnun nýrrar deilibílaþjónustu, sambærilegri Uber, í borginni. Maðurinn er sagður vera 57 ára gamall og heita Choi. Hann mun hafa hellt eldsneyti yfir sig og bíl sinni fyrir utan þinghúsið í Seoul og borið eld að sjálfum sér. Umrætt fyrirtæki, sem heitir Kakao Mobility, er nú að prófa appið sem rekstur fyrirtækisins byggir á. Undanfarnar vikur hafa leigubílstjórar haldið umfangsmikil mótmæli í höfuðborginni vegna fyrirtækisins sem til stendur að opna. Þeir segja það ógna störfum þeirra. Leigubílstjórar fara fram á að ríkisstjórn Suður-Kóreu neiti Kakao um starfsleyfi. Í kjölfar þess að maðurinn kveikti í sér sendu fjögur stéttarfélög leigubílstjóra frá sér yfirlýsingu þar sem þeir kölluðu eftir því að yfirvöld stæðu við starfsstétt þeirra.Yonhap fréttaveitan segir einn forsvarsmann stéttarfélags hafa opinberað hluta yfirlýsingar sem Choi skyldi eftir sig þar sem hann segir rekstur Kakao vera ólöglegan Kakao vinnur að því að tengja ökumenn við aðila sem eru á svipaðri leið á háannatíma. Önnur fyrirtæki eins og Uber hafa ekki náð fótfestu í Suður-Kóreu vegna laga þar í landi en þrátt fyrir það segja leigubílstjórar að app Kakao muni ganga af starfsstéttinni dauðri.
Asía Suður-Kórea Tækni Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira