Ragnheiður nýr listrænn stjórnandi Arctic Arts Festival Atli Ísleifsson skrifar 18. desember 2018 10:09 Ragnheiður Skúladóttir. Mynd/Arctic Arts Festival
Ragnheiður Skúladóttir hefur verið ráðin sem stjórnandi Listahátíðarinnar í Norður-Noregi, Arctic Arts Festival. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsvarsmönnum hátíðarinnar, en Ragnheiður hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra Íslenska dansflokksins undanfarin ár og verið annar listrænna stjórnenda LÓKAL leiklistarhátíðar í Reykjavík. „Ragnheiður Skúladóttir kom að skipulagningu viðburða á Arctic Arts Festival árin 2016 og 2017 (Arctic Arts Summit). Hún velur leiklistar- og dansviðburði á dagskrá hátíðarinnar 2019, mun taka til starfa í marsmánuði 2019 og vinna við hlið Mariu Utsi, núverandi stjórnanda, þar til hún tekur að fullu við starfi listræns stjórnanda í ágúst 2019,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Ragnheiði að hún hlakki til að hefja vinnu í Harstad. „Staðsetning hátíðarinnar finnst mér afar heillandi; ég hef unnið á norðurslóðum og kann vel að meta þá útsjónarsemi og hreinskiptni sem fylgir jafnan lífi og starfi fólks á þessum slóðum. Listahátíðin í Norður-Noregi hefur gengið í gegnum mikilvægar breytingar á liðnum árum – undir stjórn Mariu Utsi – og það er frábært tækifæri að mega taka við af henni og leiða hátíðina inn í spennandi tíma,“ segir Ragnheiður.
Dans Menning Vistaskipti Mest lesið Play er gjaldþrota Viðskipti innlent Engin ást eftir milli flugmanna og stjórnenda Viðskipti innlent Þetta eru réttindi þeirra sem eiga bókað með Play Neytendur Koma fólkinu heim með fimmtán milljóna króna leiguflugi Viðskipti innlent Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Viðskipti innlent Kveðjubréf Einars forstjóra til starfsfólks Viðskipti innlent Sömu miðarnir kosti nú 370 þúsund Viðskipti innlent Farþegar Play í Keflavík klóra sér í kollinum Viðskipti innlent Play kvartaði undan Icelandair þremur vikum fyrir gjaldþrot Viðskipti innlent Loka Kristjánsbakaríi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair geti ekki svarað fyrir orðræðuna Play kvartaði undan Icelandair þremur vikum fyrir gjaldþrot Loka Kristjánsbakaríi Hætta rekstri tveggja skipa í hagræðingarskyni Engin ást eftir milli flugmanna og stjórnenda Sömu miðarnir kosti nú 370 þúsund Koma fólkinu heim með fimmtán milljóna króna leiguflugi Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Samgöngustofa fundaði nýlega með Play og fékk gögn frá KPMG „Við erum ekki með öll eggin í sömu körfu“ „Hver fyrir sig hvað það varðar“ Farþegar Play í Keflavík klóra sér í kollinum Ráðin sölu- og markaðsstjóri hjá Alfreð Kveðjubréf Einars forstjóra til starfsfólks Play er gjaldþrota Bein útsending: Staða aðfluttra á húsnæðismarkaði Spennandi tími til að opna nýjan fjölmiðill Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn í eina sæng Lagning gjaldþrota Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Uppsagnir hjá Fjársýslunni Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Bein útsending: Framsýn forysta Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Sexfölduðu veltuna á einu ári Gjaldeyrisforðinn nálægt billjón króna Sjá meira