Lögreglumenn drepnir í árás á kínverska ræðismannsskrifstofu Atli Ísleifsson skrifar 23. nóvember 2018 08:34 Árásin átti sér stað um klukkan 9:30 að staðartíma í morgun. Getty/Shakil Adil
Tveir lögreglumenn voru drepnir og öryggisvörður særðist í árás þriggja manna á kínverska ræðismannsskrifstofu í pakistönsku hafnarborginni Karachi. Einnig hafa borist fréttir af því að 25 manns hafi fallið í sjálfsvígssprengjuárás í landinu í morgun.BBC greinir frá því að árásin hafi átt sér stað um klukkan 9:30 að staðartíma, um 4:30 í nótt að íslenskum tíma, fyrir utan skrifstofuna í hverfinu Clifton. Árásarmennirnir þrír voru allir felldir af lögreglu. Að sögn lögreglu slasaðist enginn í starfsliði ræðismannsskrifstofunnar. Aðskilnaðarhópur sem berst fyrir sjálfstæði Balochistan-héraðs hefur sagst bera ábyrgð á árásinni í Karachi í morgun. Kínverjar hafa fjárfest mikið í Balochistan og segjast aðskilnaðarsinnar líta á þá, sem og pakistönsk stjórnvöld, sem kúgara sína.25 féllu í Orakzai Í morgun bárust sömuleiðis fréttir af því að 25 manns hafi látið lífið í sprengingu á markaðstorgi í bæ í héraðinu Orakzai í norðvesturhluta landsins. Ekki liggur fyrir hver ber ábyrgð á árásinni að svo stöddu. Pakistanskir fjölmiðlar segja að sjálfsvígssprengjumaður hafi ekið á bifhjóli inn í mannfjölda og sprengt þar sjálfan sig í loft upp.
Asía Kína Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira